Krispí kjúklingaborgari drauma minna

Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir

Hér erum við með hrein­ræktaða hólí mólí-upp­skrift en það er gíf­ur­yrði sem við not­um yfir sér­lega girni­leg­ar upp­skrift­ir. Þessi dá­semd kem­ur úr smiðju Berg­lind­ar Guðmunds á GRGS.is og við hvetj­um ykk­ur til að prófa.

Krispí kjúklingaborgari drauma minna

Vista Prenta

Stökk­ur nachoskjúk­linga­borg­ari

  • 700 g kjúk­linga­læri frá Rose Poul­try
  • 60 g hveiti
  • 60 g nachos­flög­ur, t.d. frá Missi­on
  • 40 g brauðrasp, mæli með Pan­ko
  • 2 tsk chilikrydd
  • 1 tsk kummín
  • 1 tsk salt
  • ½ tsk paprikukrydd
  • ½ tsk hvít­lauks­duft
  • pip­ar
  • 1 egg
  • 60 ml safi úr jalapenokrukku
  • olía
  • salt og pip­ar

Annað

  • Ham­borg­ara­brauð
  • guaca­mole
  • rauðlauk­ur
  • sal­at
  • Heinz-maj­o­nes

Leiðbein­ing­ar

  1. Setjið hveiti í eina skál.
  2. Látið egg og safa frá jalapeno í aðra skál og hrærið sam­an.
  3. Í þá þriðju setjið þið muld­ar nachos­flög­ur, brauðrasp, chilíkrydd, kummín, salt, paprikukrydd, hvít­lauks­duft og pip­ar og blandið vel sam­an.
  4. Dýfið kjúk­linga­læri fyrst í hveiti, þá eggja­blönd­una og að lok­um í nachosmuln­ing­inn. Setjið á bök­un­ar­plötu með smjörpapp­ír og dreypið smá af ólífu­olíu yfir kjúk­ling­inn. End­ur­takið með hin kjúk­linga­lær­in.
  5. Eldið í 210°C heit­um ofni í 25-30 mín­út­ur eða þar til kjúk­ling­ur­inn er fulleldaður.
  6. Hitið ham­borg­ara­brauð og smyrjið með ríf­legu magni af maj­o­nesi. Setjið meðlæti að eig­in vali á brauðið og endið með kjúk­lingn­um.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert