Taco-veisla sem þú vilt alls ekki missa af

Algjörlega geggjuð taco-veisla í boði Hildar Rutar.
Algjörlega geggjuð taco-veisla í boði Hildar Rutar. mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Það jafn­ast fátt á við gott taco, en þessi veisla er með þeim girni­legri sem við höf­um smakkað. Upp­skrift­in kem­ur úr smiðju Hild­ar Rut­ar sem er nýr penni á Trend­net, og deildi þess­ari upp­skrift þar nú á dög­un­um.

Í upp­skrift­inni eru ris­arækj­ur djúp­steikt­ar í tempura-deigi sem er ein­fald­ara í fram­reiðslu en við höld­um, ásamt sriracha-maj­ónesi og fersku sal­ati. Gjörið svo vel!

Taco-veisla sem þú vilt alls ekki missa af

Vista Prenta

Taco-veisla sem þú vilt alls ekki missa af (fyr­ir tvo, 3 taco á mann)

  • 6 litl­ar tortill­ur, soft taco (ég nota frá Santa maria sem fæst í Hag­kaup)
  • 18 ris­arækj­ur, hrá­ar
  • 1-2 hvít­lauksrif, pressuð
  • Chili-flög­ur
  • Salt og pip­ar
  • 1-2 msk. ólífu­olía
  • Olía til djúp­steik­ing­ar

Tempura-deig

  • 130 g hveiti + smá auka
  • ¼ tsk. mat­ar­sódi
  • 1 eggj­ar­auða
  • 220 ml sóda­vatn, mjög kalt

Kína­kálsal­at

  • Kína­kál, 4 blöð
  • 2 tóm­at­ar
  • 2-3 msk. rauðlauk­ur
  • ½-1 rautt chili
  • 1-2 avóka­dó
  • Safi úr ½ lime
  • Salt og pip­ar

Sriracha-sósa

  • 4 msk. maj­ónes (t.d. Hell­manns)
  • 1 tsk. sriracha-sósa
  • 1-2 msk. fersk­ur kórí­and­er, smátt saxað
  • Safi úr ½ lime

Toppa með fersk­um kórí­and­er, eft­ir smekk

Aðferð:

  1. Blandið sam­an í skál ris­arækj­um, ólífu­olíu, hvít­lauksrifi, chili flög­um, salti og pip­ar.
  2. Því næst gerið þið tempura-deigið. Blandið sam­an hveiti og mat­ar­sóda í skál. Hrærið sam­an eggj­ar­auðu og sóda­vatni og blandið sam­an við hveiti­blönd­una. Saltið og piprið eft­ir smekk. Haldið tempura-blönd­unni kaldri því þá verður deigið stökk­ara og betra.
  3. Hellið olíu í rúm­góðan pott þannig að olí­an þeki ris­arækj­urn­ar. Hitið ol­í­una. Gott ráð er að dýfa tréskafti ofan í, t.d. á trés­leikju, og ef það sýður (bubbl­ar) þá er olí­an til­bú­in.
  4. Hellið hveiti á disk og veltið ris­arækj­un­um upp úr því. Að því loknu veltið þeim upp úr tempura-deig­inu og steikið upp úr ol­í­unni þar til rækj­urn­ar eru orðnar gyllt­ar og stökk­ar. Gott er að nota stál­tang­ir í þetta verk. Það tek­ur í kring­um 2 mín­út­ur að fullelda rækj­urn­ar.
  5. Steikið tortill­urn­ar upp úr smá olíu og fyllið þær með sal­at­inu, ris­arækj­un­um, sós­unni og toppið svo með kórí­and­er.

Kína­kálsal­at

  1. Skerið kína­kál, tóm­ata, rauðlauk, avóka­dó og chili smátt. Kreistið safa úr lime og saltið og piprið. Blandið öllu vel sam­an.

Sriracha-sósa

  1. Blandið sam­an maj­ónesi, sriracha-sósu, kórí­and­er og safa úr lime.
Risarækjur og sriracha-sósa eru sprengja fyrir bragðlaukana.
Ris­arækj­ur og sriracha-sósa eru sprengja fyr­ir bragðlauk­ana. mbl.is/​Hild­ur Rut Ingimars­dótt­ir
mbl.is/​Hild­ur Rut Ingimars­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert