Hér býður Snorri Guðmundsson, sem heldur úti hinni frábæru síðu Matur & myndir, okkur upp á safaríka ribeyesteik með hvítlaukstómatsmjöri og parmesankartöflum. Hann segir að stjarnan í þessari uppskrift sé heimagerða smjörið sem henti vel með kjöti og kjúklingi og sé einnig frábært á baguettebrauðsneiðar sem meðlæti með góðu pasta.
Ribeyesteik að hætti Snorra
(fyrir 2)
- 2x 250 g ribeyesteikur
- 50 g ósaltað smjör, við stofuhita
- 15 g tómatpúrra
- 1 hvítlauksrif
- 400 g kartöflur
- 25 g parmesanostur
- 4 g steinselja
- 70 g romainesalat
- 5 kirsuberjatómatar
- ¼ lítill rauðlaukur
- 1 msk. balsamedik
- 2 msk. ólífuolía
- ½ tsk. hunang
Aðferð:
- Stappið saman tómatpúrru, 50 g smjör og hvítlauk. Smakkið til með salti og rúllið tómatsmjörinu svo þétt inn í plastfilmu. Geymið í kæli.
- Takið kjötið úr kæli 1 klst áður en á að elda það.
- Stillið ofn á 180°C með blæstri.
- Skerið kartöflurnar í bita og veltið upp úr olíu, salti og pipar. Dreifið kartöflunum yfir ofnplötu með bökunarpappír og bakið í 30-35 mín. eða þar til kartöflurnar eru orðnar fallega gylltar. Færið kartöflurnar í skál, saxið steinselju og rífið um 10 g af parmesanosti og hrærið saman við kartöflurnar.
- Skerið eða rífið romainesalat eftir smekk. Skerið rauðlauk í þunnar sneiðar, skerið tómata í bita og notið skrælara eða ostaskera til þess að gera þunnar sneiðar úr restinni af parmesanostinum.
- Pískið saman balsamedik, ólífuolíu, hunang og smá salt.
- Setjið grænmetið í skál og veltið upp úr salatdressingunni rétt áður en maturinn er borinn fram.
- Nuddið nautakjötið með olíu og saltið og piprið rausnarlega. Hitið pönnu þar til hún er orðin mjög heit. Bætið smá olíu út á pönnuna og því næst kjötinu. Látið steikurnar liggja óhreyfðar í 2 mín. á annarri hliðinni, snúið þeim og látið liggja óhreyfðar í aðrar 2 mín. Bætið smjörklípu út á pönnuna og steikið steikurnar áfram í um 2 mín. (6 mín. samtals) fyrir medium rare-steikingu en snúið þeim á um 30 sek. fresti.
- Skerið tómatsmjörið í skífur og berið fram með steikunum.
- - -
Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita ...
Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl