Stórmerkilegar staðreyndir um gulrætur

mbl.is/Colourbox

App­el­sínu­lituðu stöngl­arn­ir sem við elsk­um að japla á þegar löng­un í eitt­hvað sætt hell­ist yfir okk­ur – býr yfir staðreynd­um og stór­merki­legri sögu.

 

  • Talið er að fyrstu gul­ræt­urn­ar hafi verið ræktaðar á svæði í kring­um Af­gan­ist­an, um 900 e.kr. Fljót­lega dreifðist græn­metið út til nær­liggj­andi svæða og í kring­um ár­talið 1000, var það komið til Miðaust­ur­landa og Norður-Afr­íku. Þaðan ferðast gul­rót­in til Spán­ar og var kom­in í helstu garða Norður-Evr­ópu í kring­um 1300.
  • Crème de Lite, Long Orange og Scarlet Nan­tes eru allt teg­und­ir af gul­rót­um – en það eru til fleiri teg­und­ir af gul­rót­um en þú get­ur ímyndað þér, og hvert og eitt þeirra með stórfurðuleg og skemmti­leg nöfn.
  • Svo­kallaðar „baby-carrots“ koma frá Mike Yurosek bónda í Kali­forn­íu. Hann var orðinn þreytt­ur á að skera anga af stærri gul­rót­um frá og byrjaði að flaka þær í minni full­komna bita. Árið 2010 tóku gul­róta­bænd­ur sig sam­an og hófu að aug­lýsa gul­ræt­ur sem val­kost sem snar­lfæði – ár­ang­urs­rík her­ferð sem hvatti fólk til að fá sér gul­ræt­ur í staðinn fyr­ir fransk­ar kart­öfl­ur.
  • Ótrú­legt en satt þá geta gul­ræt­ur geymst í jörðu yfir vet­ur­inn. Það kem­ur meiri sæta í gul­ræt­urn­ar og út­kom­an verður ofboðslega bragðgóð.
  • Þegar við gríp­um í gul­rót til að seðja hungrið þá er vert að vita að gul­ræt­ur inni­halda um 88% vatn.
  • Gul­ræt­ur eru ekki bara app­el­sínu­gul­ar á lit­inn því þær finn­ast einnig í hvítu, gulu og dökk­fjólu­bláu. Og fyrstu gul­ræt­urn­ar sem skráðar eru í sögu­bæk­urn­ar voru fjólu­blá­ar og hvít­ar að lit.
  • Beta-karó­tín er efni sem gef­ur ávöxt­um og græn­meti gul-app­el­sínu­gul litar­efni sem breyt­ast í A-víta­mín í lík­am­an­um. Efnið er gott fyr­ir sjón­ina, of­næmis­kerfið og stuðlar að heil­brigðari húð.
  • Gul­ræt­ur inni­halda hvorki meira né minna en 4 teg­und­ir af sykri – súkrósa, glúkósa, xýlósa og frúktósa - syk­ur­magnið er þó afar lítið. Eins inni­halda gul­ræt­ur mjög lítið af sterkju og því eng­ar áhyggj­ur að hafa af kol­vetn­um. En við erum líka að sjá A, C, K og B6 víta­mín ásamt mang­an, kalsíum, mikið af kalí­um og trefj­um.
Gulrætur búa yfir stórmerkilegri sögu.
Gul­ræt­ur búa yfir stór­merki­legri sögu. mbl.is/​Colour­box
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert