Svona gerir þú granóla heima hjá þér

Hér færðu heimagert granóla upp á tíu!
Hér færðu heimagert granóla upp á tíu! mbl.is/Colourbox

Heima­gert er alltaf best! Hér er granóla upp­skrift sem þú get­ur auðveld­lega út­búið og verið klár alla morgna með staðgóðan morg­un­mat - eða notað sem milli­mál.

Svona gerir þú granóla heima hjá þér

Vista Prenta

Heima­gert granóla upp á tíu

  • 200 g blandaðar hent­ur og fræ
  • 400 g hafr­ar
  • 150 g heilt bók­hveiti
  • 100 g bók­hveiti
  • ½ tsk. malið engi­fer
  • ½ tsk. salt
  • 1,5 dl kó­kosol­ía
  • 5-6 msk. hun­ang eða síróp
  • ½ tsk. vanillu­syk­ur
  • 1 ¼ dl vatn
  • 50 g kó­kos­flög­ur
  • Þurrkuð trönu­ber

Aðferð:

  1. Hitið ofn­in á 200°C.
  2. Blandið öll­um þur­refn­um sam­an í stóra skál, fyr­ir utan vanillu­syk­ur, kó­kos­flög­urn­ar og trönu­ber­in.
  3. Bræðið kó­kos­fit­una, hlyn­sýróp og vanillu­syk­ur sam­an og bætið vatni sam­an við. Hellið blönd­unni yfir þur­refn­in og blandið var­lega sam­an.
  4. Hellið blönd­unni á bök­un­ar­plötu með bök­un­ar­papp­ír og setjið inn í ofn í 30 mín­út­ur. Hrærið smá í, inn á milli.
  5. Blandið síðustu hrá­efn­un­um sam­an við, hrærið vel sam­an og berið fram með hreinni jóg­úrt.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert