Aperol-ostakaka

Aperol ostakaka sem mun trylla mannskapinn.
Aperol ostakaka sem mun trylla mannskapinn. mbl.is/Pinterest_detgladekoekken

Ein svaðal­eg­asta ostakaka síðari ára er kom­in á borðið og það verður ekki aft­ur snúið. Þessi verður sú vin­sæl­asta þegar sauma­klúbb­ar lands­ins byrja að hitt­ast aft­ur eft­ir sam­komu­bann. Aperol-ostakaka gjörið svo vel!

Aperol-ostakaka

Vista Prenta

Aperol-ostakaka (fyr­ir 8)

Botn

  • 300 g digesti­vekex
  • 110 g smjör

Fyll­ing

  • 400 g rjóma­ost­ur
  • 150 mascarpo­ne (má skipta út með 150 g rjóma­osti)
  • 2 dl rjómi
  • 150 g flór­syk­ur
  • 2 app­el­sín­ur

Aperol-gel

  • 1 dl Aperol
  • 2½ dl Prosecco
  • 2 msk syk­ur
  • ½ dl sóda­vatn
  • 8 mat­ar­líms­blöð

Hug­mynd­ir að skrauti

  • Litl­ir mar­eng­stopp­ar
  • App­el­sínu­skíf­ur
  • Raspaður app­el­sínu­börk­ur

Aðferð:

Botn

  1. Smyrjið smellu­form, 20-24 cm.
  2. Myljið kexið fínt í poka eða mat­vinnslu­vél.
  3. Bræðið smjörið á væg­um hita og blandið sam­an við kexið.
  4. Dreifið kex­inu í formið og reynið að jafna kexblönd­una út.
  5. Setjið í frysti.

Fyll­ing

  1. Raspið app­el­sínu­börk og geymið smá­veg­is fyr­ir gelið.
  2. Hrærið mascarpo­ne, rjóma­ost, app­el­sínu­börk og flór­syk­ur sam­an í skál, þar til bland­an verður að loft­kenndu kremi.
  3. Þeytið rjómann og blandið sam­an við ostakremið.
  4. Setjið ofan á kex­botn­inn og reynið að slétta úr krem­inu eins vel og mögu­legt er.
  5. Setjið kök­una í frysti yfir nótt.

Aperol-gel

  1. Leggið mat­ar­límið í bleyti með köldu vatni í 10 mín­út­ur.
  2. Blandið sam­an Aperol, prosecco, sykri, sóda­vatni og safa úr 1 app­el­sínu.
  3. Hitið 1 dl af Aperol-blönd­unni í potti.
  4. Setjið mat­ar­límið út í Aperol-blönd­una í pott­in­um og látið leys­ast upp. Bætið þá rest­inni af Aperol-blönd­unni út í og takið pott­inn af hit­an­um.
  5. Látið kólna í 5-10 mín­út­ur.
  6. Hellið var­lega yfir kök­una í form­inu og setjið kök­una í kæli í að minnsta kosti tvo tíma.
  7. Takið kök­una úr form­inu og skreytið.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert