Heimagerður McFlurry úr þremur hráefnum

Hver væri ekki til í einn Oreo McFlurry? Nú er …
Hver væri ekki til í einn Oreo McFlurry? Nú er ekkert mál að útbúa slíkan í eldhúsinu heima. mbl.is/McDonalds

Rétt' upp hönd sem væru til í McFl­urry núna! Vin­sæl­asti ís­inn á McDon­alds er ekki svo flók­inn í fram­reiðslu og má auðveld­lega út­færa í eld­hús­inu heima með ein­ung­is þrem­ur hrá­efn­um.

Hvernig er hægt að þakka nægi­lega fyr­ir upp­skrift sem þessa? Ef þetta á ekki eft­ir að skora hátt hjá krökk­un­um á heim­il­inu, þá mun ekk­ert gera það. Heima­gerða McFl­urry-upp­skrift­in er búin að ferðast hratt um net­heim­ana und­an­farið og þá sér­stak­lega eft­ir að McDon­alds lokaði mörg­um úti­bú­um þar ytra vegna Covid-19.

Svona býrðu til McFl­urry með Oreo

  • 250 ml rjómi
  • 216 ml niðursoðin mjólk
  • 6 Oreo-kex­kök­ur

 Aðferð:

  1. Byrjið á því að setja kexið í poka og mylja það með köku­kefli.
  2. Blandið sam­an rjóm­an­um og helm­ingn­um af niðursoðnu mjólk­inni. Bætið við mjólk ef bland­an er ekki nægi­lega sæt á bragðið.
  3. Bætið kex­inu út í og blandið vel sam­an.
  4. Setjið í frysti í 4-5 tíma eða þar til bland­an er föst í sér. Forðist að opna fryst­inn inn á milli.
  5. Þegar ís­inn er til­bú­inn, skreytið þá með kex­köku og dýfið skeiðinni ofan í.
Þrjú hráefni er allt sem til þarf í góðan Flurry.
Þrjú hrá­efni er allt sem til þarf í góðan Flurry. mbl.is/​Cha Samp­an
Heimagerður McFlurry gjörið svo vel.
Heima­gerður McFl­urry gjörið svo vel. mbl.is/​Cha Samp­an
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert