Grillaðir vængir í bestu marineringu í heimi

Grilltímabilið er að hefjast og þessir vængir verða það fyrsta …
Grilltímabilið er að hefjast og þessir vængir verða það fyrsta sem endar á teinunum. mbl.is/Colourbox

Grillaðir kjúk­linga­væng­ir eru dá­læti allra í fjöl­skyld­unni. Hér eru þeir í heims­ins bestu mar­in­er­ingu þar sem sæt­an í mar­melaðinu er dá­sam­leg á móti þessu sterka. Það má starta sumr­inu í góðra vina hópi með þess­um vængj­um.

Grillaðir vængir í bestu marineringu í heimi

Vista Prenta

Grillaðir væng­ir í bestu mar­in­er­ingu í heimi

  • ¾ bolli apríkósu mar­melaði
  • 3 msk. viskí (t.d. Jack Daniels)
  • 2 msk. nýkreist­ur lime-safi
  • 2 msk. sojasósa
  • ½ msk. sriracha
  • 1,1 kg kjúk­linga­væng­ir
  • Saxaður kórí­and­er eða vor­lauk­ur

Aðferð:

  1. Pískið sam­an í stóra skál, mar­melaði, viskí, lime-safa, sojasósu og sriracha – þar til mjúkt og vel blandað sam­an. Setjið um ¼ bolla í litla skál og til hliðar.
  2. Setjið kjúk­ling­inn út í stóru skál­ina með mar­in­er­ing­unni og veltið upp úr. Setjið skál­ina því næst inn í ís­skáp í 2-4 tíma.
  3. Hitið grillið á lág­um hita. Leggið hliðina með bein­inu niður á við og grillið í 10 mín­út­ur. Snúið þá við og grillið áfram í 10-15 mín­út­ur.
  4. Stráið söxuðum kórí­and­er eða vor­lauk yfir og berið fram með góðri ídýfu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert