Auðveldasti heimabakstur í heimi

Frábærar bollur sem þú undirbýrð kvöldinu áður og býður fjölskyldunni …
Frábærar bollur sem þú undirbýrð kvöldinu áður og býður fjölskyldunni upp á nýbakað morguninn eftir. mbl.is/Colourbox

Við elsk­um góðar bollu­upp­skrift­ir – en við elsk­um enn meira að borða afrakst­ur­inn. Hér er upp­skrift að boll­um sem þú get­ur und­ir­búið kvöldið áður og boðið fjöl­skyld­unni upp á nýbakað morg­un­inn eft­ir.

Auðveld­asti heima­bakst­ur í heimi

Vista Prenta

Auðveld­ar hafra­boll­ur (12 stk)

  • 5 g ger
  • 3½ dl kalt vatn
  • 125 g haframjöl
  • 1 msk. hun­ang
  • 125 g rúg­hveiti
  • 125 g hveiti
  • 1 tsk. gróft salt
  • ½ msk. kaldpressuð rap­sol­ía (til að smyrja formið)

Annað

  • Haframjöl til skreyt­ing­ar – eins má nota hör­fræ, ses­am­fræ, sól­blóma­kjarna, saxaða grasker­skjarna eða hnet­ur.

Aðferð:

  1. Hrærið gerið út í kalt vatnið og bætið haframjöli sam­an við ásamt hun­angi, rúg­hveiti og hveiti.
  2. Hnoðið í 5 mín­út­ur.
  3. Bætið salti sam­an við og haldið áfram að hnoða í nokkr­ar mín­út­ur til viðbót­ar.
  4. Setjið plast­filmu yfir deigið og inn í ís­skáp í 12-24 tíma.
  5. Smyrjið muff­ins­form með ol­í­unni (ál­form með pláss fyr­ir 12).
  6. Dýfið hönd­un­um eða skeið í kalt vatn og leggið einn klump af deigi ofan í hverja „holu“ í form­inu.
  7. Stráið haframjöli eða öðru ofan á deigið og látið boll­urn­ar hef­ast í sirka 1 tíma.
  8. Bakið við 225°C í 20-25 mín­út­ur. Látið kólna á rist.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert