Karl Bretaprins sleppir hádegismatnum

Karl Bretaprins þykir mikill sælkeri á mat.
Karl Bretaprins þykir mikill sælkeri á mat. mbl.is/Getty Images

Fyrr­ver­andi kokk­ur bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unn­ar sagði frá mat­ar­venj­um Karls Bretaprins í viðtali nú á dög­un­um, en Karl þykir sæl­keri.

Dar­ren McGra­dy stóð lengi vakt­ina í eld­hús­inu fyr­ir breska aðal­inn, og fór út í smá­atriðin þegar hann var spurður út í mat­ar­venj­ur Karls. Hann seg­ir að Karl hafi iðulega borðað mjög hollt á morgn­ana, oft­ast nær sleppt há­deg­is­matn­um og notið þess að borða góðan kvöld­verð. Karl er mikið fyr­ir líf­rænt ræktaðan mat og var það löngu áður en slíkt varð vin­sælt.

Karl byrj­ar dag­inn á ávöxt­um, hann slepp­ir iðulega há­deg­is­mat en fær sér te og harðsoðin egg seinnipart­inn. Kvöld­mat­ur­inn er oft­ast nær góð steik og er þá lamba­kjöt með sveppar­í­sottó í miklu upp­á­haldi hjá prins­in­um. Lamba­kjötið er hæg­soðið og rísottóið eldað með sólþurrkuðum tómöt­um og kónga­svepp­um ásamt basilíku og trufflu­olíu. Hljóm­ar bara alls ekki illa ef þið spyrjið okk­ur!

Karl elsk­ar góða vill­i­sveppi og fór reglu­lega með kokk­ana sína til Balmoral til að sýna þeim hvar bestu svepp­ina væri að finna sem síðan voru notaðir í alls kyns rétti.

Darren McGrady starfaði sem kokkur fyrir bresku konungsfjölskylduna um árabil.
Dar­ren McGra­dy starfaði sem kokk­ur fyr­ir bresku kon­ungs­fjöl­skyld­una um ára­bil. mbl.is/​dailymail.co.uk
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert