Það er rómantískt hjá Le Creuset

Nýjar bleiktónaðar freistingar frá Le Creuset.
Nýjar bleiktónaðar freistingar frá Le Creuset. mbl.is/Le Creuset

Heims­frægi pottafram­leiðand­inn Le Cr­eu­set kynn­ir nýj­an ein­stak­an lit í mat­ar­stelli – „Shell Pink“. Fín­gert mat­ar­stell á glæst­an máta, í mjúk­um bleik­um lit­brigðum sem mun heilla alla upp úr skón­um.

Það er ákveðinn sjarmi yfir nýj­ung­un­um frá Le Cr­eu­set – nýj­ung­ar sem fanga jafn­vel róm­an­tík, ef svo mætti að orði kom­ast. Mat­ar­stellið er fal­lega bleikt og minn­ir einna helst á pastel­bleik­ar skelj­ar úr fjör­unni – lit­ur sem fer aldrei úr tísku. Þessi föl­bleiki lit­ur sóm­ar sér vel einn og sér, en það er líka auðvelt að blanda hon­um sam­an með fleiri pastellit­um eða öðrum hlut­laus­um litatón­um.
Það verður í það minnsta ekki vor­legra en þetta á mat­ar­borðinu í ár.

mbl.is/​Le Cr­eu­set
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert