Ommeletta sem þú mátt alls ekki missa af

Besta byrjun á deginum! Ommeletta með spínati og beikon.
Besta byrjun á deginum! Ommeletta með spínati og beikon. mbl.is/Colourbox

Omm­eletta með fyll­ingu er dá­sam­leg byrj­un á deg­in­um. Hér er um ein­falda út­gáfu sem bragðast bet­ur en hugs­ast get­ur.

Ommeletta sem þú mátt alls ekki missa af

Vista Prenta

Omm­eletta sem þú mátt alls ekki missa af (fyr­ir 4)

  • 8 egg
  • ½ dl mjólk
  • Salt og pip­ar
  • 100 g bei­kon
  • Ólífu­olía
  • 2 stór­ar mozzar­ella kúl­ur

Annað:

  • 200 g spínat
  • 100 g feta­ost­ur

Aðgerð:

  1. Pískið egg með mjólk og kryddið með salti og pip­ar.
  2. Steikið bei­kon á pönnu upp úr olíu.
  3. Takið bei­konið af pönn­unni og setjið smá olíu á pönn­una. Hellið sirka ¼ af eggjamass­an­um á pönn­una og steikð þar til mass­inn byrj­ar að festa sig.
  4. Rífið mozzar­ella ost­inn í litla bita og leggið fjórðung á helm­ing­inn af eggja­kök­unni, ásamt smá­veig­is af bei­koni.
  5. Steikið þar til eggjamass­inn hef­ur tekið sig.
  6. Brjótið eggja­kök­una í hálf­mána og setjið já disk.
  7. End­ur­takið allt sam­an þar til þú ert með fjór­ar eggja­kök­ur í heild­ina.
  8. Blandið spínati og feta­osti sam­an og veltið upp úr smá olíu.
  9. Berið fram omm­elettu og spínatsal­at með feta­osti.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert