Sunnudagsmaturinn sem sumir segja besta mat í heimi

Ljósmynd/Albert Eiríksson

Þessi upp­skrift er í svo miklu upp­á­haldi að ég fór um­svifa­laust að leggja drög að því hvenær ég gæti haft hana í mat­inn og boðið pabba í mat. Ég er alin upp á ömmu-kótilett­um og ég fæ bók­staf­lega vatn í munn­inn við að lesa þessa upp­skrift.

Það er meist­ari Al­bert Ei­ríks sem á heiður­inn að upp­skrift­inni og hafi hann þakk­ir fyr­ir.

Sunnudagsmaturinn sem sumir segja besta mat í heimi

Vista Prenta

Læ­risneiðar i raspi

  • Læ­risneiðar úr einu lamba­læri
  • 1,5 dl hveiti
  • 2 egg
  • 2,5 dl rasp
  • olía
  • smjör
  • salt og pip­ar

Aðferð:

Gott er að hafa kjötið við stofu­hita. Setjið hveiti í skál, brjótið egg­in í aðra skál og sláið þau í sund­ur og setjið rasp í þriðju skál­ina. Setjið olíu og smjör á pönnu, ágætt að hafa 2 hluta af olíu á móti ein­um af smjöri. Veltið lærissneiðunum upp úr hveit­inu, þá eggj­un­um og loks raspinu. Steikið sneiðarar dágóða stund í ol­í­unni/​smjör­inu á báðum hliðum þangað þær eru fal­lega brún­ar. Kryddið með salti og pip­ar. Raðið sneiðunum í eld­fast form, hellið rest­inni af ol­í­unni yfir, setjið álp­app­ír yfir og eldið í 100°C heit­um ofni í um klst.

- - -

Fylgstu með Mat­ar­vefn­um á In­sta­gram og Face­book. Enda­laus æv­in­týri, hug­mynd­ir, skemmti­leg­ir leik­ir og allt það heit­asta heita...

Svo megið þið endi­lega tagga okk­ur á In­sta­gram þegar þið eruð að elda eitt­hvað spenn­andi @mat­ur.a.mbl

Ljós­mynd/​Al­bert Ei­ríks­son
Ljós­mynd/​Al­bert Ei­ríks­son
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert