Danir halda áfram að toppa sig

Nýr stóll frá danska húsgagnaframleiðandanum Erik Jørgensen ber nafnið „taco“.
Nýr stóll frá danska húsgagnaframleiðandanum Erik Jørgensen ber nafnið „taco“. mbl.is/Erik Jørgensen

Danski hús­gagna­fram­leiðand­inn Erik Jør­gensen kynnti á dög­un­um splunku­nýj­an borðstofu­stól sem ber það skemmti­lega nafn „Taco“.

Inn­blástur­inn að hönn­un stóls­ins Taco má rekja til fram­andi mat­ar­gerðar í Mexí­kó. Þar sem lög­un á fal­lega boga­dregn­um taco-skelj­um er end­ur­fædd í sæt­is­baki og setu á nýj­um stól. Og til að auka þæg­ind­in er hægt að fá stól­inn bólstraðan.

Taco er mjög ein­fald­ur stóll sem sam­ein­ar fág­un í stíl­hrein­um lín­um en er einnig full­kom­inn fyr­ir góða slök­un. Stóll­inn er fá­an­leg­ur í ýms­um út­gáf­um, allt frá ein­föld­um viðarstól yfir í bólstraða út­gáfu með áföst­um örm­um frá setu. Hér eru sporöskju­laga taco-skelj­arn­ar klár­lega sett­ar í nýtt sam­hengi sem fal­legt hús­gagn.

Stóllinn er fáanlegur í ýmsum útgáfum.
Stóll­inn er fá­an­leg­ur í ýms­um út­gáf­um. mbl.is/​Erik Jør­gensen
mbl.is/​Erik Jør­gensen
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka