Langar þig til að rækta kryddjurtir og geta alltaf gripið í rósmarín, basiliku eða jafnvel myntu út í kaldan sumardrykk – þá er það mun auðveldara en þig grunar.
Það er annar hver Íslendingur búinn að vera í hálfgerðri hreiðurgerð síðustu vikur og fleiri farnir að færa sig út á pallinn eða svalirnar - hreinsa aðeins til þar líka. Hér sýnum við ykkur hvernig má útfæra ofur einfaldan kryddjurtargarð á innan við klukkutíma, og hann tekur ekki mikið gólfpláss. Eina sem þú þarft er vörubretti og málning ef þú vilt ganga skrefinu lengra.
Svona býrðu til kryddjurtargarð
- 1 vörubretti
- Gróðurdúk eða striga
- Heftibyssu
Aðferð:
- Skoðaðu vörubrettið sem þú ert með og athugaðu hvort að þú þurfir að fjarlægja fleiri spýtur af til að kryddjurtirnar nái að vaxa upp.
- Þegar þú ert sátt/ur með brettið, skaltu klæða það að innan með gróðurdúk eða striga þar sem þú ætlar að planta kryddjurtunum. Festið með heftibyssu.
- Ef þú ert að nota mjög þykkan dúk, skaltu búa til lítil göt í dúkinn þannig að vatn nái að leka niður. Passaðu bara að götin sé ekki það stór að moldin fari að leka með.
- Setjið mold í hvert „box“ og plantaðu kryddjurtum ofan í.
- Þú getur einnig málað vörubrettið í hressandi lit ef þú óskar.
Hér hefur verið málað með krítarmálningu til að merkja hvaða kryddjurtir eru til staðar.
mbl.is/Pinterest