TikTok kakan sem inniheldur tvö hráefni

TikTok er nýjasti afþreyingarmiðill fólksins - og nú með uppskrift …
TikTok er nýjasti afþreyingarmiðill fólksins - og nú með uppskrift að einfaldri köku. mbl.is/Colourbox

Ef bakst­ur í sam­komu­banni hef­ur sýnt fram á litla takta í eld­hús­inu, þá er þetta kannski upp­skrift fyr­ir þig til að prófa. Hér bjóðum við upp á köku sem er að gera allt vit­laust á TikT­ok og inni­held­ur ein­ung­is tvö hrá­efni.

Ástr­alski kokk­ur­inn Rob Nixon deildi nú á dög­un­um upp­skrift að auðveld­ustu súkkulaðisynd í heimi. Hann póstaði kök­unni á TikT­ok og það ætlaði allt um koll að keyra – en Rob kall­ar sig Nic­ko´s Kitchen og er með yfir 45 þúsund fylgj­end­ur á TikT­ok.

Ef þú elsk­ar Nu­tella, þá er þetta kak­an sem þú ætt­ir að vera baka því hún mun koma þér veru­lega á óvart og þú get­ur ekki klúðrað henni, svo ein­föld er hún.

TikTok kakan sem inniheldur tvö hráefni

Vista Prenta

TikT­ok kak­an sem inni­held­ur tvö hrá­efni

  • 8 egg
  • 1 Nu­tella krukka

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn á 180°C.
  2. Þeytið egg­in þar til þau verða að hvítri „froðu“.
  3. Þegar egg­in hafa náð áferðinni, lækkið þá und­ir hraðanum og hellið um hálfri Nu­tella krukku sam­an við sem er um 240 g. Ef þú geym­ir opna Nu­tella inn í ís­skáp, skaltu vera búin/​n að taka krukk­una út í góðum tíma til að hnetu­smjörið sé mjúkt í sér.
  4. Þegar hrá­efn­in hafa bland­ast sam­an ætti það að vera eins og þykk­ur vökvi. Hellið deig­inu í bök­un­ar­form og setjið inn í ofn í 40 mín­út­ur.
  5. Fylg­ist með kök­unni og stingið í með prjóni því ofn­ar geta verið mis­jafn­ir.
  6. Skreytið með flór­sykri og jarðarberj­um eða því sem hug­ur­inn girn­ist og berið fram.
Þú þeytir einfaldlega átta egg og hálfa krukku af Nutella …
Þú þeyt­ir ein­fald­lega átta egg og hálfa krukku af Nu­tella sam­an. mbl.is/​TikT­ok/​nic­koskitchen
Útkoman verður þessi stórfína kaka sem þú skreytir að vild.
Útkom­an verður þessi stór­fína kaka sem þú skreyt­ir að vild. mbl.is/​TikT­ok/​nic­koskitchen
Fullkomin súkkulaðisynd!
Full­kom­in súkkulaðisynd! mbl.is/​TikT­ok/​nic­koskitchen
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert