Brokkólí taco með trylltu meðlæti

Hreint út sagt stórkostlegt taco sem bragð er af.
Hreint út sagt stórkostlegt taco sem bragð er af. mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Þessa taco upp­skrift er að finna í bók­inni „Vin­sæl­ustu upp­skrift­irn­ar frá vin­sæl­um mat­ar­blogg­ur­um“ og kem­ur úr smiðju Hild­ar Rut­ar. Rétt­ur­inn er holl­ur, ein­stak­lega bragðgóður og fljót­leg­ur í fram­reið, eða akkúrat eins og við vilj­um hafa það.

Ég baka brokkólíið og tortill­urn­ar í ofni á meðan ég und­ir­bý rauðkáls­hrásal­atið, feta­ost­inn og avóka­dóið. Rauðkáls­hrásal­atið er æðis­lega gott og ég mæli með að prófa að setja það á ham­borg­ara eða sam­lok­ur. Hægt er að breyta upp­skrift­inni í veg­an og skipta þá út maj­ónes­inu og ost­in­um,“ seg­ir Hild­ur Rut. 

Brokkólí taco með trylltu meðlæti

Vista Prenta

Brokkólí taco með trylltu meðlæti (2-3 taco á mann)

  • 1-2 brokkólí­haus­ar
  • Ólífu­olía
  • Cum­in
  • Lauk­duft
  • Salt og pip­ar
  • Litl­ar tortill­ur (taco)
  • 1-2 avoca­do
  • Fetakubb­ur
  • Al­fal­fa spír­ur

Rauðkáls­hrásal­at

  • 5 dl ferskt rauðkál
  • 3-4 msk. Hell­manns maj­ónes
  • 2 msk. Sriracha sósa

Aðferð:

  1. Skerið brokkólí í litla bita og setjið í eld­fast form. Dreifið olíu yfir og kryddið með kúmen, lauk­dufti, salti og pip­ar.
  2. Bakið í ofni við 180°C í 13-18 mín­út­ur eða þangað til að brokkólíið er orðið stökkt.
  3. Útbúið rauðkáls­hrásal­at og hitt meðlætið á meðan brokkólíið er að bak­ast. Blandið sam­an maj­ónesi og sriracha sósu með skeið. Skerið rauðkálið í þunn­ar ræm­ur og blandið sam­an við sós­una.
  4. Stappið feta­ost­inn og stappið avóka­dó.
  5. Penslið tortill­urn­ar með ólífu­olíu og hitið þær í ofni.
  6. Setjið á tortill­urn­ar rauðkáls­hrásal­atið, brokkólí, avóka­dó, feta­ost­inn og toppið svo með al­fal­fa spír­um.
Uppskriftin er úr smiðju Hildar Rutar og er að finna …
Upp­skrift­in er úr smiðju Hild­ar Rut­ar og er að finna í bók­inni „Vin­sæl­ustu upp­skrift­irn­ar frá vin­sæl­um mat­ar­blogg­ur­um“. mbl.is/​Hild­ur Rut Ingimars­dótt­ir
mbl.is/​Hild­ur Rut Ingimars­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert