Ráðlagður dagskammtur í einni skál

Girnileg og litrík morgunskál sem setur daginn í gang.
Girnileg og litrík morgunskál sem setur daginn í gang. mbl.is/Colourbox

Það er ekki alltaf auðvelt að borða þessi 600 grömm af ávöxt­um og græn­meti sem við eig­um að inn­byrða yfir dag­inn. En með þess­ari upp­skrift ertu á réttri leið. Hér færðu holl­an og auðvelda upp­skrift að morg­un­mat sem er stút­full af góðum víta­mín­um.

Ráðlagður dagskammtur í einni skál

Vista Prenta

Ráðlagður dagskammt­ur í einni skál (fyr­ir 2)

  • 2 ban­an­ar
  • 2 hand­fylli frosn­ar baun­ir
  • 2 hand­fylli frosið brok­kolí
  • 2 hand­fylli frosið spínat
  • 2 dl vatn, má líka vera haframjólk eða skyr
  • 1 tsk. hör­fræol­ía
  • Annað: upp­á­halds ber­in þín, kó­kos­mjöl, chia­fræ, sól­blóma­kjarn­ar og möndl­ur

Aðferð:

  1. Taktu frost­vör­urn­ar út með góðum fyr­ir­vara og leyfðu þeim að þiðna í bland­ar­an­um í nokkr­ar mín­út­ur.
  2. Brjóttu ban­an­ann í minni bita og settu út í bland­ar­ann.
  3. Setjið vatnið út í og byrjið að blanda sam­an þar til all­ir „köggl­ar“ eru farn­ir. Bætið þá ol­í­unni sam­an við.
  4. Hellið í tvær skál­ar og skreytið með þeim berj­um og fræj­um sem þú ósk­ar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert