Kakan sem kaffiunnendur ærast yfir

Besta kaffikaka í heimi!
Besta kaffikaka í heimi! mbl.is/Colourbox

Kak­an sem sam­ein­ar allt það besta – eða súkkulaði, kaffi og mous­se-fyll­ingu. Stór­kost­leg veisla fyr­ir bragðlauk­ana.

Kakan sem kaffiunnendur ærast yfir

Vista Prenta

Kak­an sem kaffiunn­end­ur ær­ast yfir (fyr­ir 4-6)

  • 55 g smjör
  • 60 g saxað dökkt súkkulaði 70%
  • 2 egg, skiljið rauður frá hvít­un­um
  • 25 g syk­ur
  • 20 g hveiti
  • 2 msk. möndl­umjöl

Kaffi­sýróp

  • ½ dl vatn
  • 50 g syk­ur
  • 1 bolli ný­lagað espresso

Mous­se-fyll­ing

  • 100 g dökkt súkkulaði
  • 180 g rjómi
  • 3 eggj­ar­auður
  • 50 g syk­ur
  • 4 tsk. sterkt kaffi

Súkkulaðikrem

  • 90 g dökkt súkkulaði
  • 1½ dl rjómi
  • 30 g síróp

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn á 180°C.
  2. Setjið bök­un­ar­papp­ír á bök­un­ar­plötu.
  3. Smyrjið köku­form, 18 cm, með smjöri og leggið formið á bök­un­ar­plöt­una.
  4. Bræðið smjör í litl­um potti og takið síðan af hell­unni. Bætið súkkulaðinu í pott­inn og hrærið með sleif þar til súkkulaðið hef­ur bráðnað í heitu smjör­inu. Bætið þá eggj­ar­auðunum sam­an við.
  5. Pískið eggja­hvít­urn­ar þar til loft­kennd­ar, bætið þá sykri út í og hrærið áfram þar til bland­an verður stíf.
  6. Setjið 1/​3 af eggja­hvítu­blönd­unni út í súkkulaðiblönd­una og hendið rest­inni af eggja­hvítu­blönd­unni.
  7. Sigtið hveitið út í og því næst möndl­umjöl­inu. Blandið öllu vel sam­an og hellið í smurt formið.
  8. Bakið í miðjum ofni í 15 mín­út­ur, eða þar til kak­an hef­ur hækkað sig ör­lítið.
  9. Látið kólna á bök­un­ar­grind.

Kaffi­sýróp:

  1. Sjóðið sam­an vatn og syk­ur og látið malla í 2 mín­út­ur.
  2. Takið pott­inn af hit­an­um og bætið kaff­inu sam­an við. Setjið í loft­tæmt ílát og geymið inn í ís­skáp.
  3. Setjið hrein­an köku­hring á disk, í sömu stærð og þú bakaðir kök­una í. Klæðið köku­hring­inn með bök­un­ar­plasti eða bök­un­ar­papp­ír.
  4. Leggið köku­botn­inn þar ofan í og penslið kök­una með kaffi­sýrópi. Setjið til hliðar.

Mous­se-fyll­ing:

  1. Saxið súkkulaðið og bræðið í skál yfir vatnsbaði.
  2. Pískið rjómann létt (ekki of mikið) og setjið í kæli.
  3. Pískið eggj­ar­auður og syk­ur þar til loft­kennd­ar og bætið þá kaffi sam­an við. Veltið síðan bráðnu súkkulaðinu sam­an við og því næst kem­ur rjóm­inn var­lega út í. Hellið blönd­unni strax yfir kök­una og setjið í frysti í 2 tíma.

Súkkulaðikrem:

  1. Saxið súkkulaðið og setjið í skál.
  2. Sjóðið rjómann og sírópið sam­an og hellið heit­um rjóm­an­um yfir súkkulaðið. Hrærið sam­an þar til allt er blandað vel sam­an. Hellið blönd­unni í hátt ílát og hrærið í með töfra­sprota. Reynið að forðast loft­ból­ur.
  3. Takið kök­una úr frysti og fjar­lægið kökuplastið utan um kök­una. Setjið kök­una á rist eða ann­ars­kon­ar disk þar sem kant­arn­ir ná ör­lítið út fyr­ir.
  4. Byrjið frá miðju og hellið súkkulaðikrem­inu yfir. Lyftið kök­unni síðan yfir með spaða á kökudisk og látið súkkulaðið harna inn í ís­skáp áður en borið er fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert