Bollurnar sem þarf ekki að hnoða

Við sláum ekki hendinni á móti nýbökuðum bollum með graskerskjörnum.
Við sláum ekki hendinni á móti nýbökuðum bollum með graskerskjörnum. mbl.is/Colourbox

Þessi bollu­upp­skrift er sú allra besta – og smakk­ast svo vel með smjöri einu sam­an. Hér þarftu ekk­ert að hnoða tím­un­um sam­an því deigið á að vera klístrað og létt.

Bollurnar sem þarf ekki að hnoða

Vista Prenta

Boll­urn­ar sem þarf ekki að hnoða (ca. 12 stk)

  • 5,5 dl volgt vatn
  • 15 g ger
  • 4 dl haframjöl
  • 2 msk. súr­mjólk eða skyr
  • 1 tsk. salt
  • 1 msk. hun­ang
  • 1 dl grasker­skjarn­ar
  • 200 g heil­hveiti
  • 200 g gra­hams­mjöl
  • 100 g hveiti

Aðferð:

  1. Leysið gerið upp í vatn­inu. Bætið haframjöli og súr­mjólk út í og látið standa í 10 mín­út­ur.
  2. Bætið salti, hun­angi og grasker­s­kjörn­um í skál­ina.
  3. Blandið þrem­ur hvei­ti­teg­und­un­um sam­an og hellið því smátt og smátt út í deigið á meðan þú hrær­ir í með skeið. Hrærið þar til deigið verður að ein­um massa. Deigið á að vera pínu klístrað og blautt. Leggið hreint viska­stykki yfir skál­ina og látið hef­ast í 2 tíma við stofu­hita.
  4. Þegar deigið hef­ur náð að hef­ast að mestu, kveikið þá á ofn­in­um á 250° og látið eina bök­un­ar­plötu standa í á meðan deigið klár­ar að hefa sig.
  5. Notið blaut­ar skeiðar til að setja deig/​boll­ur á bök­un­ar­papp­ír og dragið svo papp­ír­inn yfir á heitu plöt­una.
  6. Stráið jafn­vel smá­veig­is af grasker­s­kjörn­um yfir og bakið neðst í ofni í 14-16 mín­út­ur þar til gyllt­ar og stökk­ar ef þú bank­ar létt í þær.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert