Ítölsku smákökurnar sem eru ómótstæðilegar með kaffibollanum eru mættar á borðið. Stökkar og bragðgóðar í auðveldri uppskrift sem krefst ekki mikils tíma. Hér skal notast við möndlur með hýðinu á, því það er akkúrat það sem undirstrikar bragðið.
Kökurnar sem eru ómissandi með kaffinu
- 300 g hveiti
- 300 g sykur
- 2 stór egg
- 75 g smjör, mjúkt
- ½ tsk. salt
- 1 tsk. lyftiduft
- 1 tsk. vanillusykur
- 150 g möndlur
Aðferð:
- Blandið öllum hráefnunum saman í skál, fyrir utan möndlurnar. Hrærið þar til allt hefur blandast vel saman. Bætið þá möndlunum saman við.
- Skiptið deiginu upp í þrjá jafna hluta og rúllið hverjum út í „pulsu“ í sömu lengd og bökunarplatan er.
- Leggið deighlutana þrjá á bökunarpappír á bökunarplötu og setjið inn í ofn á 210°C. Bakið í 20 mínútur.
- Takið út og látið kólna í 5 mínútur.
- Skerið lengjurnar þrjár með beittum hníf. Skerið deigið á ská, sirka 1 cm breitt. Leggið á bökunarplötuna með skurðhliðina upp.
- Setjið aftur inn í ofn á 210°C og bakið áfram í fimm mínútur.