Tertan sem er betri en úr bakaríi

Jarðarberjaterta af allra bestu gerð.
Jarðarberjaterta af allra bestu gerð. mbl.is/Colourbox

Jarðarberja­terta hleyp­ir vatni í munn­inn hjá mörg­um og er í miklu upp­á­haldi. Þessi ein­staka upp­skrift að tert­unni slær all­ar aðrar baka­rís­kök­ur út af borðinu.

Tertan sem er betri en úr bakaríi

Vista Prenta

Tert­an sem er betri en úr baka­ríi

Deig

  • 150 g smjör
  • 240 g hveiti
  • 125 g syk­ur
  • 1 tsk. vanillu­syk­ur
  • 1 egg

Fyll­ing

  • 100 g smjör
  • 100 g syk­ur
  • 100 g marsíp­an (rifið)
  • ½ egg
  • Til­búið kökukrem
  • 2½ dl mjólk
  • ¼ rjómi
  • 100 g dökkt súkkulaði
  • Jarðarber
  • Rifs­berja­sulta

Aðferð:

  1. Skerið smjörið í litla bita og smuldrið því í hveitið.
  2. Blandið sykri og vanillu­sykri sam­an við og hnoðið svo egg­inu út í.
  3. Rúllið deigið út og leggið í tertu­form.

Fyll­ing:

  1. Hrærið smjör og syk­ur sam­an og því næst kem­ur marsíp­anið og eggið.
  2. Setjið blönd­una á tertu­botn­inn og bakið við 200° í 20 mín­út­ur. Takið úr ofn­in­um og látið kólna.
  3. Kökukrem (hversu mikið, fer eft­ir hvaða krem er notað) og mjólk hrær­ist vel sam­an. Pískið rjómann og blandið sam­an við.
  4. Bræðið súkkulaði og penslið tertu­botn­inn.
  5. Setjið kökukremið ofan á og skreytið með hálf­skorn­um jarðarberj­um sem þú pensl­ar með rifs­berja­sultu.
  6. Setjið í kæli í 1 tíma áður en borið er fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert