Þetta er það heitasta í þrifum í dag

Lime er hin mesta snilld sem þú getur notað við …
Lime er hin mesta snilld sem þú getur notað við heimilisþrifin. mbl.is/Colourbox

Við sýn­um ykk­ur staðina þar sem þú get­ur leikið laus­um hala með lime við hönd og haldið heim­il­inu hreinu – og vel ilm­andi.

Blóm­in verða fersk­ari
Tvær te­skeiðar af li­mes­afa, ein te­skeið af klór og ein te­skeið af sykri er ekki upp­skrift að næsta kokteil! Þetta er blanda sem þú set­ur í blóma­vas­ann, því þannig hald­ast blóm­in leng­ur.

Fiskifýla
Þú kann­ast við að henda af­gangs­fiski, roði og bein­um í tunn­una og áður en langt um líður lykt­ar ruslaskáp­ur­inn og húsið af fiskifýlu. Kreistu smá lime yfir og lykt­in er á bak og burt.

Hend­urn­ar
Það er ekki bara lykt­in úr rusla­tunn­unni sem þarf að hugsa um, því hend­urn­ar geta lyktað af því að meðhöndla hvít­lauk, lauk eða aðrar sterklykt­andi mat­vör­ur. Þá er gott að skrúbba hend­urn­ar upp úr li­mes­afa.

4 mín­út­ur
Það tek­ur ná­kvæm­lega fjór­ar mín­út­ur að þrífa ör­bylgju­ofn­inn með lime. Settu hálft lime í skál með vatni ásamt 2 msk. af lyfti­dufti og stilltu á full­an kraft í fjór­ar mín­út­ur. Þurrkaðu á eft­ir með rök­um klút.

Heim­il­isilm­ur
Vatn, lyfti­duft og li­mes­afi er allt sem til þarf í góðan heim­il­isilm. Settu blönd­una í úðabrúsa og notaðu sem heim­il­isilm – því bland­an eyðir vondri lykt og dreif­ir góðum ilmi. Auðvelt, ódýrt og ein­falt!

Notaðu lime á sjálf­an þig
Þegar heim­ilið er orðið hreint og fínt, skaltu nota lime-rútín­una á sjálf­an þig. Því það jafn­ast ekk­ert á við heitt vatns­glas með li­mes­afa út í. En sú upp­skrift kem­ur frá ayur­veda-hefðinni, er sögð vinna á flensu og hita – og þar fyr­ir utan, hjálp­ar bland­an þér við vigt­ina.
Og með hrein­an kropp, þarftu að hafa hreint hár! Li­mes­afi blandað sam­an við kó­kosol­íu get­ur gert krafta­verk fyr­ir þurrkt og slitið hár. Blandaðu hrá­efn­un­um sam­an og nuddaðu vel inn í hárið. Láttu sitja í 20-30 mín­út­ur þar til þú skol­ar hárið og þværð það svo á eft­ir eins og venja er.

Og eft­ir öll þessi þrif á heim­ili, lík­ama og sál – þá er ekk­ert að fara stoppa þig í að blanda þér einn mojito með nóg af lime.

mbl.is/​Colour­box
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert