Þetta er án efa eitt besta mojito „hack“ ef svo má að orði komast. Hér er fullorðinsdrykkur sem smakkast eins og sumarið og sólin.
Drykkurinn sem gerir allt vitlaust í sumar
- 4 cl ljóst romm frá Kúbu
- 8-12 fersk myntublöð
- ½ ferskt lime í bátum
- Sódavatn
- Mulinn ís
- Strásykur eftir þörfum (ca. 5 g)
- Vatnsmelóna, sett í blandara
Aðferð:
- Settu lime, myntu og sykurinn í glas og notaðu mortél til að blanda hráefnunum saman.
- Helltu ísmolum í glasið, því næst rommi og vatnsmelónu-safanum úr blandaranum. Hrærið varlega saman með skeið þannig að allt blandist saman.
- Þegar þú ert ánægð/ur með kokteilinn þinn, skaltu fylla upp í glasið með sódavatni og skreyta með myntu, lime eða vatnsmelónu. Og að sjálfsögðu einu röri í leiðinni til að drekka úr.
- Gleðilegt sumar!