Heilsteiktur kjúklingur er ekta helgarmatur og hér er hann sannarlega í sumarbúningi, fylltur með rabarbara og rauðlauk.
Heilsteiktur kjúlli með rauðlauk og rabarbara
- 1 heill kjúklingur frá Ali (1.400-1.500 g)
- Salt og pipar
- 500 g rauðlaukur
- 500 g rabarbari
- 50 g mjúkt smjör
- 1 msk. sykur
Fylling
- 5 g ferskt engifer
- 1 stórt hvítlauksrif
- 2 msk. smátt saxað timían
- 2 msk. púðursykur
Annað
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200°C.
- Hreinsið kjúklinginn að innan og kryddið með salti og pipar.
- Skerið rauðlaukinn í báta. Hreinsið rabarbarann og skerið 150 g í litla bita (sirka 1 cm) og restina í 4-5 cm löng stykki.
- Fylling: Blandið litlu rabarbarabitunum saman við raspað engiferið, hvítlaukinn, timían, púðursykur, salt og pipar og setjið sem fyllingu inn í kjúklinginn.
- Bindið lærin á kjúklingnum saman við brjóstið og leggið í smurt eldfast mót. Leggið rauðlauksbáta í kringum kjúklinginn og setjið nokkra smjörklatta ofan á. Hitið í ofni í 30 mínútur.
- Stráið sykri yfir löngu rabarbarabitana og blandið saman við rauðlaukinn umhverfis kjúklinginn í aðrar 30 mínútur.
- Leyfið kjúklingnum að hvíla í 5-10 mínútur og berið fram með soðnum eða ofnsteiktum kartöflum og salati að eigin vali.