Leyndardómurinn á bak við glóandi fallega húð Hollywood leikkonunnar Reese Witherspoon, er sáraeinföld. Hún hefur drukkið sama drykkinn daglega í níu ár og segist eiga honum allt að þakka.
Þetta drekkur Reese Witherspoon daglega (fyrir 2)
- 2 romaine salathausar
- ½ bolli spínat
- ½ bolli kókosvatn
- 1 banani
- 1 epli
- 1 pera
- 1 sítróna
- Sellerí (val)
- Hnetusmjör (val)
Aðferð:
- Hráefnin skorin niður og sett í blandara - gætir þurft að gera helming í einu.
- Hellið í brúsa eða stór glös og njótið.
Witherspoon birti nýverið myndband á Instagram sem sýnir hvernig hún blandar saman drykkinn.
mbl.is/Instagram