Djúsí ofnbakað pasta

Þessi pastauppskrift skorar fullt hús stiga.
Þessi pastauppskrift skorar fullt hús stiga. mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Girni­leg­ur og ein­stak­lega góður pasta­rétt­ur með nauta­hakki og dá­semd­ar ostasósu – a la Hild­ur Rut. Rétt­ur­inn kall­ast „milli­on doll­ar spaghetti“ en í þess­ari upp­skrift er not­ast við penne pasta. Hild­ur Rut seg­ir rétt­inn slá einnig í gegn hjá yngri kyn­slóðinni.

Djúsí ofnbakað pasta

Vista Prenta

Djúsí ofn­bakað pasta (fyr­ir 4-6)

  • 500 g nauta­hakk
  • 250 g tóm­at­passata
  • 2-3 msk tóm­at­púrra
  • ½ lauk­ur
  • 2 hvít­lauksrif, pressuð
  • Kjöt­kraft­ur
  • Salt og pip­ar
  • 400 g penne pasta frá De Cecco
  • 3 egg
  • 4 msk. stein­selja
  • 1½ dl Parmigiano-Reggiano
  • 4 msk smjör
  • 2 dl kota­sæla
  • 1 Phila­delp­hia ost­ur
  • Rif­inn mozzar­ella ost­ur

Aðferð:

  1. Byrjið á að skera lauk­inn smátt og steikið hann við væg­an hita. Bætið nauta­hakk­inu út í og steikið.
  2. Blandið tóm­at­passata, hvít­lauk og kjöt­krafti sam­an við nauta­hakkið. Saltið og piprið eft­ir smekk.
  3. Sjóðið penne pasta eft­ir leiðbein­ing­um á pakkn­ingu.
  4. Skerið stein­selju og rífið Parmigiano. Þeytið egg­in, stein­selj­una og Parmigiano sam­an í skál.
  5. Sigtið vatnið frá past­anu og setjið aft­ur í pott­inn.
  6. Bætið smjöri og eggja­blöndu út í og hrærið. Hrærið kota­sælu og rjóma­osti út í og setjið pasta­blönd­una í eld­fast mót.
  7. Smyrjið nauta­hakk­inu ofan á pastað og stráið mozzar­ella osti yfir.
  8. Bakið í 15-20 mín­út­ur við 180° eða þar til ost­ur­inn er bráðnaður. Gott að bera fram með fersku sal­ati.
mbl.is/​Hild­ur Rut Ingimars­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert