Spennandi nýjung frá lakkrískónginum

Lakkríslíkjör var að koma á markað frá kónginum sjálfum - …
Lakkríslíkjör var að koma á markað frá kónginum sjálfum - Johan Bülow. mbl.is/© Lakrids By Bülow

Eft­ir 13 ára æv­in­týri með lakk­rís í allskyns út­færsl­um, þá er Joh­an Bülow mætt­ur með nýja vöru sem skil­ur sig frá öllu öðru.

Það eru marg­ir sem hafa beðið eft­ir þess­ari nýj­ung – jafn­vel án þess að vita af því! Við erum að sjá lakk­rís­lí­kjör sem mun verða það vin­sæl­asta næstu miss­er­in. Lí­kjör­inn er til­val­inn út á ís, í kaffið eða jafn­vel kokteil­inn. „Okk­ar ósk er að vera það fyr­ir­tæki í heim­in­um sem skil­grein­ir gæðin í lakk­rís og vera alltaf fremst­ir í flokki með hvað sé hægt að gera með lakk­rís“, seg­ir Joh­an Bülow. Og til að tryggja sömu gæði í nýrri vöru, þá leitaði fyr­ir­tækið til þýska vín­fram­leiðand­ans Waldemar Behn sem er einn sá fremsti lí­kjörs­fram­leiðandi þar í landi.

Lakrids by Bülow von­ast til að sem flest­ir muni elska lakk­rís í flösku. Sæt­ur keim­ur af bour­bon-vanillu og kara­mellu­sykri sem mæt­ir hrá­um lakk­rís og beiskju frá kakóbaun­um er bland­an sem þeir bjóða upp á. Lí­kjör­inn er fá­an­leg­ur á heimasíðu Bülow HÉR og í sér­versl­un­um. Það mun þó ef­laust ekki líða á löngu þar til við sjá­um lí­kjör­inn lenda hér á landi.

Það verður spennandi að smakka þessa nýjung.
Það verður spenn­andi að smakka þessa nýj­ung. mbl.is/© ​Lakrids By Bülow
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert