Ítalskir brauðsnúðar með parmaskinku

Brauðsnúðar með pestó og parmaskinku á ítalska vísu.
Brauðsnúðar með pestó og parmaskinku á ítalska vísu. mbl.is/Colourbox

Hér eru gotte­rí­is snúðar að koma úr ofn­in­um. Ekta brauðsnúðar með ít­alskri fyll­ingu – eða með pestó og parma­skinku. Nammi namm!

Ítalskir brauðsnúðar með parmaskinku

Vista Prenta

Ítalsk­ir brauðsnúðar með parma­skinku

  • 25 g ger
  • 2 dl mjólk
  • 2 egg
  • 1 tsk salt
  • 100 g smjör
  • 500 g hveiti

Fyll­ing

  • 100 g pestó
  • 100 g parma­skinka

Aðferð:

  1. Hitið mjólk­ina volga í potti eða ör­bylgju. Leysið gerið upp í mjólk­inni.
  2. Setjið egg og salt út í mjólk­ina og smuldrið smjör­inu út í hveitið. Blandið ger­blönd­unni sam­an við hveitið og hnoðið þar til slétt og mjúkt.
  3. Látið hef­ast í 1 tíma.
  4. Skerið parma­skinku í bita og blandið pestói sam­an við.
  5. Fletjið deig­inu út í sirka 30x42 cm. Smyrjið fyll­ing­unni á. Leggið 1/​3 af deig­inu yfir að heilm­ingn­um og síðan aft­ur yfir. Þannig að fyll­ing­inn sé öll inn í deig­inu.
  6. Fletjið deigið aft­ur út í sirka 22x25 cm og skerið í 3 cm breiða strimla. Snúið upp á striml­ana.
  7. Setjið á bök­un­ar­papp­ír á bök­un­ar­plötu og látið hef­ast í 15 mín­út­ur.
  8. Bakið í miðjum ofni við 200° í 15-18 mín­út­ur.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert