Lúxusbleikja á 30 mínútum

Dásamleg bleikja með fylllingu a la Hildur Rut á Trendnet.
Dásamleg bleikja með fylllingu a la Hildur Rut á Trendnet. mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Hér er ein­föld upp­skrift að lúxusmat sem tikk­ar í öll box­in. Bleikja með trylltri fyll­ingu í boði Hild­ar Rut­ar sem seg­ir það taka rétt um hálf­tíma að mat­reiða rétt­inn.

„Þessi blanda er ein­stak­lega ljúf og mér finnst alls ekki nauðsyn­legt að bera rétt­inn fram með sósu. Quin­oa eða bakaðir kart­öflu­bát­ar og ferskt sal­at er gott meðlæti með bleikj­unni. Mér finnst mjög gott að blanda fersku græn­meti við quin­oa. Mæli með að þið prófið þetta. Ferskt, hollt og gott!“

Lúxusbleikja á 30 mínútum

Vista Prenta

Lúx­us bleikja á 30 mín­út­um (fyr­ir 2-3)

  • 500 g bleikja
  • 1 dl spínat
  • 1 dl feta­ost­ur
  • 1 dl sólþurrkaðir tóm­at­ar
  • 10 döðlur
  • 2 msk. ólífu­olía
  • Salt & pip­ar

Aðferð:

  1. Skerið spínatið, sólþurrkuðu tóm­at­ana og döðlurn­ar smátt og stappið feta­ost­inn.
  2. Blandið öllu sam­an í skál ásamt ólífu­olí­unni.
  3. Leggið bleikj­una á bök­un­ar­plötu þakta bök­un­ar­papp­ír og látið roðið snúa niður.
  4. Saltið og piprið bleikj­una.
  5. Dreifið spínatblönd­unni jafnt ofan á bleikj­una og bakið hana í 15 mín­út­ur við 200° eða þar til bleikj­an er orðin fullelduð.
  6. Gott að bera hana fram með fersku sal­ati og quin­oa eða kart­öfl­um.
Auðveldur réttur sem fjölskyldan mun elska.
Auðveld­ur rétt­ur sem fjöl­skyld­an mun elska. mbl.is/​Hild­ur Rut Ingimars­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert