Nýir litir í vinsælustu skál allra tíma

Nýir litir í vinsælu Krenit-skálinni frá Normann Copenhagen. Hér sést …
Nýir litir í vinsælu Krenit-skálinni frá Normann Copenhagen. Hér sést skálin í rykgrænum lit. mbl.is/Normann Copenhagen

Í gegn­um tíðina hef­ur Krenit-skál­in frá Normann Copen­hagen mótað sig sem tákn um góða danska hönn­un. Og nú er skál­in fá­an­leg í tveim­ur nýj­um lit­um – sand og ryk­græn­um.

Með full­komnu jafn­vægi í straum­línu­lagaðri hönn­un, er skál­in orðin hluti af danskri klass­ískri hönn­un. En það var verk­fræðing­ur­inn og efna­fræðing­ur­inn Her­bert Krenchel sem kynnti fyrstu Krenit-skál­ina árið 1953. Sam­spilið á milli matta og svarta yf­ir­borðs skál­ar­inn­ar á móti litaðri innri hlið, gef­ur skál­inni meiri dýpt en ann­ars. Og í raun er það örþunn­ur kant­ur sem skil­ur þess­ar tvær ólíku áferðir að.

Nýju lit­irn­ir eru ró­andi og sam­ræma allt sem fell­ur und­ir tíma­lausa hönn­un. En þess má geta að liðin eru fjög­ur ár síðan litap­all­etta Krenit-skál­ar­inn­ar var síðast stækkuð. Vörumerkja­stjór­inn Britt Bonn­esen seg­ir að nýju lit­irn­ir hafi verið í þróun í dágóðan tíma – en sýn­is­horn af sand-litn­um hafi til að mynda verið nokk­ur ár í stof­unni heima hjá henni við góðar und­ir­tekt­ir frá gest­um og gang­andi. Því er óhætt að segja að sum­ir hlut­ir sanni gildið sitt með tím­an­um eins og í þessu til­viki.

Annar af nýju litunum ber nafnið sand og stendur sannarlega …
Ann­ar af nýju lit­un­um ber nafnið sand og stend­ur sann­ar­lega und­ir nafni. mbl.is/​Normann Copen­hagen
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert