Flatbrauð að ítölskum hætti

Ekta piadina eins og Ítalirnir gera það.
Ekta piadina eins og Ítalirnir gera það. mbl.is/Colourbox

Pia­dina er heitið yfir flat­brauð eins og Ítal­ir kjósa að bera það fram. Fyll­ing­in get­ur verið allt frá gúrme skinku yfir í osta­veislu – í raun allt það sem hug­ur­inn girn­ist. Hér er upp­skrift að ekta pia­dina sem þú munt elska.

Flatbrauð að ítölskum hætti

Vista Prenta

Flat­brauð á ít­alska vísu (fyr­ir 2-4)

  • 4 flat­brauð
  • 100 g rjóma­ost­ur með hvít­lauk
  • 1 kúr­bít­ur
  • 1 rautt chili
  • 1 stórt hvít­lauksrif
  • 1 brok­kolí haus
  • Ólífu­olía
  • 100 g spínat
  • Raspaður sítr­ónu­börk­ur
  • Salt og pip­ar
  • 100 g gouda eða provolone í skíf­um

Aðferð:

  1. Smyrjið tvö flat­brauð með rjóma­ost­in­um.
  2. Skerið kúr­bít­inn í skíf­ur. Saxið chilil og hvít­lauk smátt. Skerið einnig brok­kolí í minni bita. Steikið upp úr olíu á pönnu í 3 mín­út­ur. Bætið þá spínatinu sam­an við og látið malla áfram þar til spínatið hef­ur fallið sam­an.
  3. Smakkið til með röspuðum sítr­ónu­berki, salti og pip­ar.
  4. Setjið fylll­ing­una jafnt ofan á flat­brauðið með rjóma­ost­in­um og dreifið gouda eða provolone-osti yfir. Leggið flat­brauð ofan á og skerið til helm­inga. Bakið í ofni eða setjið á grillið þar til ost­ur­inn hef­ur bráðnað.
  5. Berið pia­dina fram heitt.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert