Taco sem keyrir sumarið í gang

Sumarið í formi taco´s í boði Snorra hjá Matur og …
Sumarið í formi taco´s í boði Snorra hjá Matur og Myndir. mbl.is/Snorri Guðmundsson

Þess­ar girni­legu mexí­kósku tacos eru með þeim betri sem við höf­um smakkað, og ekki skemm­ir fyr­ir hversu lit­rík­ar og sum­ar­leg­ar þær eru á að líta. Upp­skrift­in kem­ur frá Snorra hjá Mat­ur og mynd­ir og tek­ur rétt um 20 mín­út­ur frá byrj­un til enda.

Taco sem keyrir sumarið í gang

Vista Prenta

Taco sem keyr­ir sum­arið í gang (fyr­ir 2)

  • 300 g mexí­kópyls­ur (sterk­ar) frá Ali
  • 8 litl­ar tortill­ur / t.d. white corn tortilla frá Old El Paso
  • 1 avoca­do
  • ¼ lít­ill rauðlauk­ur
  • 1 hvít­lauksrif
  • 6 g kórí­and­er
  • 125 g smá­tóm­at­ar
  • 1 límóna
  • 2 ra­dís­ur
  • 50 g íssal­at eða Romaine
  • 50 ml jap­anskt maj­ónes
  • 50 ml sýrður rjómi
  • 30 ml salsa sósa
  • ½ tsk. hvít­lauks­duft
  • Hot sauce eft­ir smekk / t.d. Cholula green pepp­er

Aðferð:

  1. Stillið ofn á 150°C með yfir og und­ir hita.
  2. Hrærið sam­an maj­ónes, sýrðan rjóma, salsa sósu og hvít­lauks­duft. Smakkið til með salti og geymið svo í kæli.
  3. Setjið Mexí­kópyls­ur í mat­vinnslu­vél og látið vél­ina ganga í stutt­um hryn­um þar til áferðin á pyls­un­um er svipuð og hakki.
  4. Skerið tóm­ata og avoca­do í bita, saxið rauðlauk eft­ir smekk, pressið hvít­lauksrif og saxið kórí­and­er. Setjið allt sam­an í skál ásamt smá skvettu af ólífu­olíu og rífið límónu­börk sam­an við. Smakkið til með salti.
  5. Sneiðið sal­at í þunn­ar ræm­ur og setjið í skál. Sneiðið ra­dís­ur mjög þunnt og setjið í skál með smá köldu vatni.
  6. Vefjið tortilla vefj­um inn í álp­app­ír og hitið í ofni þar til vefj­urn­ar eru mjúk­ar og heit­ar.
  7. Hitið smá olíu á pönnu við meðal­há­an hita og steikið hökkuðu pyls­un­ar í nokkr­ar mín þar til kjötið er farið að brún­ast fal­lega.
  8. Raðið sósu, sal­ati, kjöti og avoca­do salsa í tortilla vefj­urn­ar. Toppið með ra­dís­um og ykk­ar upp­á­halds hot sauce.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert