Svona færðu spa-áferð á handklæðin

mbl.is/Colourbox

Hvern dreym­ir ekki um að eiga baðher­bergi sem lík­ist lít­illi heilsu­lind – þar sem af­slöpp­un og dek­ur er í fyr­ir­rúmi? Hér færðu ráð sem fær­ir þig einu skrefi nær þeim veru­leika.

Eitt af því sem við elsk­um við að mæta á heilsu­lind eru dúnamjúku hand­klæðin og baðslopp­arn­ir sem bíða okk­ar á staðnum. Til þess að ná fram þess­ari full­komnu mýkt þarf afar ein­föld aðgerð að eiga sér stað – og þá ertu ekki að fara að hella mýk­ing­ar­efni í þvotta­vél­ina.

Svona færðu spa-áferð á hand­klæðin

  1. Þvoðu hand­klæðin á 40°-60° hita með fljót­andi þvotta­efni og hálf­um bolla af hvítu ed­iki.
  2. Þegar vél­in hef­ur lokið sér af skaltu taka hand­klæðin úr og hengja upp á snúru.
  3. Eft­ir smá tíma skaltu setja hand­klæðin í þurrk­ar­ann til að þurrka þau al­veg. Þannig verða þau dúnamjúk.

Ástæðan fyr­ir því að edik virk­ar bet­ur en mýk­ing­ar­efni er að ed­ikið „brýt­ur niður“ af­gang­inn af þvotta­efn­inu sem mýk­ir hand­klæðin þegar þau þorna.

Dreymir þig oft um að komast í spa? Þú getur …
Dreym­ir þig oft um að kom­ast í spa? Þú get­ur gert ým­is­legt heima við til að kom­ast nær þeim ósk­um. mbl.is/​Colour­box
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert