Ómótstæðileg jarðarberjabomba

Litlar unaðs marengskökur með jarðarberjarjóma.
Litlar unaðs marengskökur með jarðarberjarjóma. mbl.is/Bobedre.dk

Litl­ar, loft­kennd­ar og gjör­sam­lega ómót­stæðileg­ar mar­engs­kök­ur með hnet­um og jarðarberj­ar­jóma. Þess­ar eru of flott­ar og bragðgóðar til að láta fram­hjá sér fara.

Ómótstæðileg jarðarberjabomba

Vista Prenta

Ómót­stæðileg jarðarberja­bomba

Hnetumar­engs

  • 175 g hnet­ur, t.d. hesli­hnet­ur eða möndl­ur
  • 2 eggja­hvít­ur
  • 175 g syk­ur
  • 100 g dökkt súkkulaði

Jarðarberj­ar­jómi

  • 300 g jarðarber
  • 50 g flór­syk­ur
  • 1 peli rjómi (eða meira ef vill)

Annað

  • 6 stál­hring­ir, 8 cm í þver­mál / það má líka not­ast við eitt stórt form, 20 cm
  • 300 g blönduð ber, t.d. jarðarber, hind­ber og rifs­ber
  • dökkt súkkulaði til að skreyta

Aðferð:

  1. Stillið ofn­inn á 160°C.
  2. Gróf­hakkið hnet­urn­ar – og passið að þær mylj­ist ekki of mikið.
  3. Pískið eggja­hvít­urn­ar stíf­ar. Bætið þá sykri sam­an við og pískið al­veg stíf­ar.
  4. Veltið hnet­un­um og saxaða súkkulaðinu í mar­engs­inn.
  5. Setjið stál­hring­ina á bök­un­ar­papp­ír á bök­un­ar­plötu og skiptið deig­inu jafnt á milli formanna. Bakið í 25 mín­út­ur.
  6. Hreinsið jarðarber­in og stráið flór­sykri yfir – blandið sam­an.
  7. Pískið rjómann og veltið jarðarberj­un­um sam­an við. Setjið rjómann í sprautu­poka með stjörnu­laga stút.
  8. Losið kök­urn­ar úr form­inu og sprautið jarðarberj­ar­jóm­an­um ofan á. Skreytið með jarðarberj­um og súkkulaðispæni.

Upp­skrift: Bo­Bedre.dk

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert