Beikonsultan sem þykir sú besta

Beikonsulta hentar með flestöllum mat og er geggjuð ofan á …
Beikonsulta hentar með flestöllum mat og er geggjuð ofan á hamborgara. mbl.is/preservinggoodstock.com

Þessi sulta er svo geggjuð að þú munt enda með að nota hana á all­an mat - í bröns­inn, á osta­borðið eða með grill­matn­um. Eins kon­ar sultu-mar­melaði sem all­ir elska.

Beikonsultan sem þykir sú besta

Vista Prenta

Beikonsult­an sem all­ir elska

  • 250 g bei­kon
  • 2 lauk­ar
  • 2 stór hvít­lauksrif
  • 1 rautt chili
  • ½ dl viskí
  • 2 msk. púður­syk­ur
  • 2 msk. franskt eplas­i­der edik
  • ½ dl espresso
  • 1 tsk. salt
  • 3 msk. síróp

Aðferð:

  1. Steikið bei­konið í ofni við 200°C þar til stökkt og saxið það svo smátt.
  2. Saxið lauk, chili og hvít­lauk og blandið sam­an við bei­kon og púður­syk­ur, eplas­i­der edik, espresso, salt, síróp og viskí.
  3. Hellið á pönnu og látið suðuna koma upp.
  4. Lækkið und­ir hit­an­um og látið malla við væg­an hita í 35-40 mín­út­ur - þar til mass­inn hef­ur þykknað, er brún­leit­ur á yf­ir­borðinu og bragðið ólýs­an­legt.
  5. Látið kólna al­veg og setjið þá inn í ís­skáp.
  6. Berið fram með öllu því sem hug­ur­inn girn­ist!
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert