Sumardrykkur að hætti Chrissy Teigen

Ljósmynd/Cravings by Chrissy Teigen

Ef það er ein­hver sem kann að skemmta sér og öðrum, þá er það Chris­sy Teig­en. Hún deildi upp­skrift að kokteil sem fylgj­end­ur henn­ar kalla „sum­arið enda­lausa“ í glasi.

Ef þú ert ekki mikið fyr­ir vod­ka get­ur þú skipt því út fyr­ir tequila eða hvít­vín – eða sleppt vín­inu ef því er að skipta.

Sumardrykkur að hætti Chrissy Teigen

Vista Prenta

Sum­ar­drykk­ur að hætti Chris­sy Teig­en (fyr­ir 4)

  • 60 ml nýkreist­ur lime eða sítr­ónu safi
  • 50 g syk­ur
  • 1 lítri vatns­mel­óna skor­in niður, án steina
  • 225 ml mjög kalt (helst frosið) vod­ka
  • Sítr­ónu eða lime sneiðar og mynta til skreyt­ing­ar

Aðferð:

  1. Blandið sam­an lime safa og sykri í litla skál og hrærið þar til syk­ur­inn leys­ist upp.
  2. Skerið vatns­mel­ón­una í bita og raðið í mót (22x33 cm) og hellið syk­ur-lime blönd­unni yfir. Setjið í frysti í það minnsta 4 tíma eða sól­ar­hring.
  3. Setjið frosnu mel­ón­una í bland­ara og bætið vod­ka sam­an við – blandið sam­an.
  4. Hellið í fjög­ur glös og skreytið með lime og myntu.
Drykkurinn sem Chrissy Teigen er að gera alla vitlausa með …
Drykk­ur­inn sem Chris­sy Teig­en er að gera alla vit­lausa með á In­sta­gram. mbl.is/​In­sta­gram_cra­vings­bychris­syteig­en
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert