Brjálæðislega gott guacamole með feta

Guacamole að hætti Hildar Rutar - ótrúlega ferskt og gott.
Guacamole að hætti Hildar Rutar - ótrúlega ferskt og gott. mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Ef það er ein­hver sem kann að gera full­komið guaca­mole þá er það Hild­ur Rut á Trend­net. En hún er bet­ur þekkt fyr­ir að gefa út bók­ina Avoca­do sem kom út hér um árið við mikl­ar vin­sæld­ir.

Brjálæðislega gott guacamole með feta

Vista Prenta

Brjálæðis­lega gott guaca­mole með feta

  • 2 avoca­do
  • 1/​2 sítr­óna
  • 1/​3-1/​4 fetakubb­ur
  • Ólífu­olía
  • Salt og pip­ar
  • 1 chili
  • 1-2 msk blaðlauk­ur
  • 1 mangó, smátt skorið

Aðferð:

  1. Blanda sam­an avoca­do, sítr­ónusafa, feta­osti, ólífu­olíu, salti og pip­ar í töfra­sprota eða mat­vinnslu­vél. Ef þið ætlið að gera gróft guaca­mole er betra að stappa inni­halds­efn­un­um sam­an.
  2. Skerið mangó, chili og blaðlauk smátt og blandið sam­an með skeið.
  3. Berið fram með tortilla­f­lög­um eða öðru sem hug­ur­inn girn­ist.
mbl.is/​Hild­ur Rut Ingimars­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert