Nýtt morgunkorn komið á markað

Nýtt morgunkorn er komið á markað - spennandi nýjungar fyrir …
Nýtt morgunkorn er komið á markað - spennandi nýjungar fyrir káta krakka. mbl.is/General Mills

Við elsk­um að upp­götva nýj­ar bragðteg­und­ir af morgun­korn­um – og hvað þá að smakka! Gener­al Mills til­kynnti á dög­un­um tvær nýj­ar morgun­korn­s­teg­und­ir og eina gamla sem er vænt­an­leg aft­ur að ósk neyt­enda.

Nýju bragðteg­und­irn­ar eru Mini­ons Vanilla Vibe og Lucky Charms Ho­ney Clovers. Eins er von á að sjá Cocoa Puffs Brownie Crunch sem hvarf úr hill­um versl­ana um ákveðinn tíma. Mini­ons Vanilla verður í tak­mörkuðu magni og var inn­blást­ur frá nýrri mynd „Mini­ons: The Rise of Gru“ sem sök­um kór­ónu­veirunn­ar er seinkað fram til árs­ins 2021. Nýja Lucky Charms-ið verður með ör­litlu tvisti við hið upp­runa­lega, þar sem þú finn­ur gyllta smára í pakk­an­um með sætu hun­angs­bragði.

Morgun­korn­in eru fá­an­leg í ýms­um mat­vöru­versl­un­um víðs veg­ar um heim­inn í tak­markaðan tíma.

mbl.is/​Gener­al Mills
mbl.is/​Gener­al Mills
mbl.is/​Gener­al Mills
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert