Bolla er ekki bara bolla

Það eru ýmis ráð sem gott er að hafa í …
Það eru ýmis ráð sem gott er að hafa í huga þegar við bökum bollur eða annan brauðbakstur. mbl.is/Colourbox

Það er ekki bara nóg að bakst­ur­inn líti út fyr­ir að vera full­kom­inn því bragðið þarf að vera þar líka. Hér eru bestu ráðin hvernig þú bak­ar full­komn­ar brauðboll­ur – því bolla er ekki bara bolla.

Legðu í bleyti
Dag­inn áður en þú bak­ar er gott ráð að leggja kjarna eða annað í bleyti (ef þú nærð að vera það skipu­lagður). Haframjöl þolir til dæm­is mjög vel að liggja í bleyti og get­ur haft stór áhrif á bakst­ur­inn hvort að brauðið verði þurrt eða ekki. Ef að kjarn­ar fá að draga í sig vökva yfir nótt, mun það skila sér marg­falt í bakstr­in­um.

Hita­stigið skipt­ir máli
Það ger­ist ým­is­legt þegar þú hnoðar deigið, sem hef­ur mik­il áhrif á hvernig boll­urn­ar koma til með að bak­ast. Því er mik­il­vægt að nota volgt vatn þegar þú hnoðar deigið – því þá get­ur þú hnoðað leng­ur og deigið verður slétt­ara. Það get­ur til dæm­is verið mjög gott að nota vatnið sem kjarn­arn­ir hafa legið í nótt­ina á und­an.

Þol­in­mæði
Þó að ann­ríki í hvers­dags­leik­an­um eigi það til að spila stórt hlut­verk í bakstr­in­um, þá er gott að drífa ekki bakst­ur­inn sér­stak­lega áfram. Bak­ar­ar vilja meina að best sé að hnoða deigið í 8-12  mín­út­ur þar til deigið verður slétt og fínt. Þannig get­ur þú verið full­viss um að öll hrá­efn­in séu kom­in jafnt inn í deigið og út­kom­an verður stór­kost­leg. Ef þú ert dæmi­gert bak­aranörd, þá er vert að vita að deig á að vera í kring­um 28-29° hita þegar það er full­komið til bakst­urs.

mbl.is/​Colour­box
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert