Nú getur þú fengið þér matarstell frá Hermés

mbl.is/© Hermès

Flest áhuga­fólk um tísku ætti að kann­ast við franska tísku­húsið Hermès sem hef­ur verið starf­rækt síðan 1837. Hermès kynn­ir nýtt mat­ar­stell þar sem nátt­úr­an er í aðal­hlut­verki.

Mat­ar­stellið er hannað af lista­kon­unni Nathalie Rol­land-Huckel og er fag­ur­lega skreytt lit­rík­um blóm­um og pálma­blöðum. En það hef­ur lengi verið ósk fyr­ir­tæk­is­ins að koma með mat­ar­stell sem er skreytt trópikalskri nátt­úru – þar sem not­and­inn dregst inn í villta nátt­úr­una á mat­ar­borðinu. Benoît-Pier­re Emery, list­rænn stjórn­andi Hermès Tableware, seg­ir mat­ar­stellið hylla nátt­úr­una með þeim fal­legu og lit­ríku blóma­blöðum sem við sjá­um á stell­inu. Því þegar við um­kringj­um okk­ur nátt­úr­unni, hvort sem við erum úti við eða með mat­ar­stelli sem þessu – gef­ur það okk­ur mögu­leika á að finna frið og ró.

Pálmablöð og litrík blóm skreyta matarstellið.
Pálma­blöð og lit­rík blóm skreyta mat­ar­stellið. mbl.is/© ​Hermès
Nýtt matarstell frá tískuhúsinu Hermès.
Nýtt mat­ar­stell frá tísku­hús­inu Hermès. mbl.is/© ​Hermès
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert