Svona notar þú naglakk á allt mögulegt

Naglalakk er hin mesta snilld við ýmsum „vandamálum
Naglalakk er hin mesta snilld við ýmsum „vandamálum". mbl.is/Colourbox

Naglalakk er svo miklu meira en bara til skrauts á fing­urn­ar – því við get­um notað lakkið á ýmsa vegu til að létta okk­ur lífið. Því er alltaf gott að eiga gam­alt lakk til að grípa í þegar þörf er á.

Svona get­ur þú notað naglalakk á marga vegu

  • Þegar þú átt erfitt með að þræða nál skaltu setja smá lakk á end­an á þræðinum (ekki of mikið). En þá verður þráður­inn stíf­ur og flýg­ur í gegn­um nál­ar­augað.
  • Ef þú kann­ast við að nælon­sokk­arn­ir renni stans­laust niður og und­ir il­ina í skón­um, skaltu setja smá lakk á sokk­inn og vand­inn heyr­ir sög­unni til.
  • Þegar reim­arn­ar losna að fram­an og þú kem­ur þeim ómögu­lega inn í gatið á skón­um, skaltu setja lakk á end­ann – láta það harna og þá kem­ur þú reim­inni inn.
  • Það er gott ráð að setja mis­mun­andi liti af lakki á húslykl­ana til að þekkja þá í sund­ur – sér­stak­lega sniðugt fyr­ir krakka.
  • Þeir sem ennþá senda bréf­póst á milli staða, glíma stund­um við ómögu­leg um­slög þar sem þau vilja ekki lokast al­menni­lega. Settu smá­veig­is af naglalakki á um­slagið og það mun hald­ast lokað og ná sína leið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert