Ostaídýfan sem gerir allt vitlaust

Ostaídýfa sem þú getur ekki lagt frá þér!
Ostaídýfa sem þú getur ekki lagt frá þér! mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Hér um ræðir ostaí­dýfu sem sög­ur fara af! Þessi þykir með þeim betri sem sést hafa í lengri tíma og það ekki að ástæðulausu – því ídýf­an inni­held­ur þrjár teg­und­ir af ost­um ásamt jalapeno sem ger­ir allt ör­lítið betra. Upp­skrift­in er í boði Hild­ar Rut­ar sem seg­ir ídýf­una vera full­komna á grillið.

Ostaídýfan sem gerir allt vitlaust

Vista Prenta

Ostaí­dýf­an sem ger­ir allt vit­laust

  • 200 g Phila­delp­hia rjóma­ost­ur með graslauk
  • 1½ dl sýrður rjómi
  • 3 dl rif­inn chedd­ar ost­ur
  • ½ dl rif­inn parmigiano reggiano
  • 1 dl smátt skor­inn jalapeno (eða minna ef þið viljið ekki sterkt)

Toppa með

  • 35 g smör
  • ½ dl rif­inn parmigiano reggiano
  • ⅔ dl pan­ko rasp­ur
  • Stein­selja smátt skor­in
  • Tortilla­f­lög­ur með osta­bragði frá Ma­arud

Aðferð:

  1. Blandið sam­an rjóma­osti, sýrðum rjóma, chedd­ar osti, parmigiano og jalapeno. Dreifið blönd­unni í eld­fast mót eða steypu járn­spönnu.
  2. Bræðið smjör í potti, bætið parmigiano og raspi sam­an við og hrærið vel sam­an.
  3. Dreifið raspin­um yfir ídýf­una og bakið í ofni við 190°C á blæstri í 20 mín­út­ur eða þar til ídýf­an er orðin gyllt og stökk. Það er einnig mjög gott að grilla ídýf­una.
  4. Dreifið stein­selj­unni yfir í lok­in og berið fram með tortilla­f­lög­um.
mbl.is/​Hild­ur Rut Ingimars­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert