Himneskt humarpasta

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Hér erum við með æðis­legt humarp­asta frá Berg­lindi Hreiðars á Gotteri.is. Við mæl­um að sjálf­sögðu með því enda allt dá­sam­legt sem kon­an sú eld­ar.

Rjóma­löguð sósa með par­mes­an og tómöt­um fer virki­lega vel með past­an­um og humr­in­um. Að þessu sinni notaði ég marg­lita kirsu­berjatóm­ata en það var auðvitað meira fyr­ir út­litið en bragðið, það er að sjálf­sögðu hægt að nota bara þessa rauðu litlu fal­legu.

Himneskt humarpasta

Vista Prenta

Humarp­asta

Pasta

  • 500 g Dececco pasta­skrúf­ur
  • 2 x askja skelflett­ur hum­ar frá Sæl­kera­fiski (2 x rúm­lega 300g)
  • 1 lauk­ur
  • 3 hvít­lauksrif
  • 500 g kirsu­berjatóm­at­ar
  • 600 ml rjómi
  • 2 lúk­ur rif­inn par­mesanost­ur
  • 3 msk.söxuð stein­selja
  • 1 tsk. humar­kraft­ur
  • Smjör og ólífu­olía til steik­ing­ar
  • Salt, pip­ar og hvít­laus­duft

Aðferð:

  1. Affrystið humar­inn, skolið og þerrið.
  2. Sjóðið pasta sam­kvæmt leiðbein­ing­um á pakka.
  3. Steikið lauk og hvít­lauk upp úr smjöri þar til það fer aðeins að mýkj­ast og bætið þá humr­in­um sam­an við. Kryddið með salti, pip­ar og hvít­lauks­dufti eft­ir smekk og setjið í skál um leið og humar­inn er til­bú­inn.
  4. Bætið þá ólífu­olíu á pönn­una og setjið tóm­at­ana sam­an við (skerið þá fyrst til helm­inga). Steikið þá við meðal­hita þar til þeir mýkj­ast aðeins og saltið og piprið.
  5. Hellið nú rjóm­an­um yfir tóm­at­ana ásamt par­mesanosti, stein­selju og humar­krafti.
  6. Kryddið til með salti, pip­ar og hvít­laus­dufti.
  7. Þegar pastað er til­búið má bæta því út í sós­una ásamt humr­in­um og ná upp smá hita að nýju.
  8. Best er síðan að bera pastað fram með rifn­um par­mes­an og hvít­lauks­brauði (sjá upp­skrift að neðan).
Ljós­mynd/​Berg­lind Hreiðars­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert