Bananaís úr einu hráefni

Það er lítið mál að búa til bananaís og hann …
Það er lítið mál að búa til bananaís og hann smakkast líka stórvel! mbl.is/Colourbox

Hér færðu upp­skrift að ban­an­aís sem inni­held­ur ein­ung­is eitt hrá­efni – ban­ana!

Ban­an­ar – ef­laust ein mesta ávaxtasnilld sem til er. Full­kom­in orka, frá­bær í bakst­ur og nyt­sam­leg­ur í þrif, er hægt að biðja um meira? Ban­ani get­ur líka verið ís án þess að bæta við nokkr­um öðrum hrá­efn­um og geri aðrir (ávext­ir) bet­ur.

Við eig­um oft­ar en ekki til ban­ana sem við sjá­um ekki fram á að borða eða nota. Þá er full­komið að búa til ís úr hrá­efn­inu án þess að vera full af sykri og rjóma. Hér fyr­ir neðan er upp­skrift að ban­an­aís.

Svona ger­ir þú ban­an­aís

  • Taktu hýðið af ban­an­an­um og skerðu ban­an­ann í bita.
  • Legðu bit­ana á bakka, disk eða annað sem má fara inn í frysti þannig að þeir liggi ekki all­ir ofan á hvor öðrum.
  • Þegar ban­an­inn er fros­inn í gegn skaltu setja bit­ana í poka þar sem hann geym­ist til lengri tíma í frysti.
  • Til að búa til ís­inn skaltu setja ban­ana­bit­ana í bland­ara eða hræri­vél. Gott er að setja smá vatn ef bitarn­ir eru mjög frosn­ir eða bíða eft­ir að þeir þiðni smá­veg­is.
  • Eft­ir að hafa hrært ban­an­ann vel sam­an, verður út­kom­an krem­kennd og frá­bær ís.
  • Gott er að setja smá sítr­ónu eða gríska jóg­úrt með til að vega á móti sæt­unni.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert