Svona sleppur þú við að þrífa samlokugrillið

Grillaðar samlokur geta verið herrans matur þegar við nennum ekki …
Grillaðar samlokur geta verið herrans matur þegar við nennum ekki að elda. mbl.is/Colourbox

Hér er hin eina sanna og snjalla lausn á því hvernig þú kemst hjá því að þurfa að þrífa sam­lokugrillið eft­ir hverja notk­un.

Sam­lokugrillið – græj­an í eld­hús­inu sem fleyt­ir okk­ur svo langt á erfiðum dög­um þegar eng­inn á heim­il­inu nenn­ir að elda. Þá jafn­ast ekk­ert á við grillaðar sam­lok­ur á alla fjöl­skyld­una. En slíkt kost­ar okk­ur þó þrif á grill­inu eft­ir að ost­ur­inn, sós­an og önn­ur hrá­efni eiga það til að fest­ast á grill­inu. Og þetta nenn­ir eng­inn að þrífa! En skít­ugt sam­lokugrill er alls ekki girni­legt.

Besta ráðið til að sleppa við öll þrif, er ein­fald­lega að setja sam­lok­urn­ar í bök­un­ar­papp­ír og skella þeim á sam­lokugrillið - þannig mun allt leka og klístr­ast í papp­ír­inn. Og það besta er, að þú get­ur notað papp­ír­inn aft­ur og aft­ur á meðan þú grill­ar all­ar sam­lok­urn­ar fyr­ir fjöl­skyld­una.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert