Rétturinn sem rífur í bragðlaukana

Sjúklega góður vegan réttur sem rífur í! Það er Hildur …
Sjúklega góður vegan réttur sem rífur í! Það er Hildur Rut sem býður okkur upp á þennan rétt. mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Hér er rétt­ur sem bragð er af! Þessi girni­legi veg­an rétt­ur inni­held­ur bygg, græn­meti, avóka­dó og sriracha sósu sem ríf­ur í bragðlauk­ana. Það er Hild­ur Rut sem býður okk­ur upp á þenn­an ljúf­fenga rétt.

„Ég er alltaf að prófa mig áfram að elda græn­met­is-og veg­an­rétti vegna þess að ég vil borða meira af slík­um mat. Ég mæli með að sleppa jalapeno ef þið viljið ekki hafa þetta of sterkt. Sriracha sós­an er al­veg nóg. Ann­ars er rétt­ur­inn líka góður án sós­unn­ar.“

Rétturinn sem rífur í bragðlaukana

Vista Prenta

Veg­an rétt­ur sem ríf­ur í bragðlauk­ana (fyr­ir 1)

  • 1 dl bygg
  • 1-2 dl brokkólí
  • 1-2 dl zucchini
  • 1 vor­lauk­ur
  • ⅓ ferskt jalapeno (má sleppa)
  • 2 svepp­ir
  • Ólífu­olía
  • Salt og pip­ar
  • 1 avoca­do
  • 1 msk. kór­and­er
  • Al­fal­fa spír­ur
  • Sriracha sósa (má sleppa)

Aðferð:

  1. Sjóðið byggið eft­ir leiðbein­ing­um. 1 dl á móti 2,5-3 dl af vatni. Sjóðið í 30-40 mín­út­ur.
  2. Skerið græn­metið smátt og steikið upp úr ólífu­olíu.
  3. Blandið bygg­inu sam­an við græn­metið og kryddið með salti og pip­ar.
  4. Dreifið yfir í lok­in smátt skornu avoca­do-i, kórí­and­er og al­fal­fa spír­um ásamt Sriracha sós­unni.
mbl.is/​Hild­ur Rut Ingimars­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert