Lasagna með glæpsamlega miklum osti

Lúxus útgáfa af lasagne með glæpsamlega miklum parmesan osti í …
Lúxus útgáfa af lasagne með glæpsamlega miklum parmesan osti í boði Snorra. mbl.is/Snorri Guðmundsson

Lasagne er ef­laust rétt­ur sem all­ir á heim­il­inu elska. Hér er lúx­usút­gáfa af þess­um vin­sæla rétti sem Snorri Guðmunds seg­ir vera með glæp­sam­lega mikl­um par­mesanosti – og við elsk­um það!

„Það skipt­ir rosa­lega miklu máli að nota góðar pasta­plöt­ur þegar maður ger­ir lasagna en mér þykir þær frá Filotea mjög góðar eða þá fersku plöt­urn­ar frá Rana,“ seg­ir Snorri.

Lasagna með glæpsamlega miklum osti

Vista Prenta

Lúxuslasagna með glæp­sam­lega mikl­um osti

  • Nauta­hakk, 500 g
  • salsicciapyls­ur, 300 g (Tariello). Fást frosn­ar í Hag­kaup, Krón­unni og Mela­búðinni
  • lasagna­plöt­ur eft­ir þörf­um, ég notaði plöt­urn­ar frá Filotea, fást í Hag­kaup
  • lauk­ur, 1 stk
  • sell­e­rí, 30 g
  • hvít­lauksrif, 3 stk
  • tóm­at­púrra, 2 msk
  • hvít­vín, 150 ml
  • San Marzano-tóm­at­ar, 2 dós­ir, má nota venju­lega líka
  • nautakraft­ur, 1 ten­ing­ur
  • ít­alskt krydd, 1,5 msk (Krydd­húsið)
  • nýmjólk, 600 ml
  • hveiti, 4 msk
  • smjör, 60 g
  • múskat, 2 ml
  • par­mes­an- eða pecor­ino-ost­ur, 50 g + meira til hliðar
  • pítsu­ost­ur, 100 g

Aðferð:

  1. Saxið lauk og sell­e­rí mjög smátt. Takið utan af salsicciapyls­un­um og stappið kjötið með gaffli.
  2. Hitið olíu á pönnu eða í steypu­járn­spotti, steikið nauta­kjöt og kjötið úr pyls­un­um þar til það er nán­ast fulleldað. Þetta er best að gera í 2-3 skömmtm svo kjötið steikist sem best. Setjið á disk til hliðar og geymið.
  3. Bætið við ögn af olíu í pott­inn ef þarf og steikið lauk og sell­e­rí þar til lauk­ur­inn er glær og far­inn að mýkj­ast. Pressið þrjú hvít­lauksrif sam­an við og steikið áfram í smá­stund.
  4. Bætið tóm­at­púrru út í pott­inn og steikið í nokkr­ar mín­út­ur. Bætið hvít­víni út í pott­inn og látið sjóða niður í smá­stund.
mbl.is/​Snorri Guðmunds­son
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert