Hvaða svefntýpa ert þú?

Hvaða týpa ertu þegar kemur að svefnvenjum?
Hvaða týpa ertu þegar kemur að svefnvenjum? mbl.is/colourbox

Það finn­ast sex mis­mun­andi týp­ur þegar kem­ur að svefni og venj­um – ertu með þína týpu á hreinu?

Sum­ir hafa meiri þörf fyr­ir svefn en aðrir og talað er um að kon­ur þurfi á meiri svefn að halda en menn. Og því eldri sem við verðum, því minni svefn þurf­um við. Stress spil­ar einnig stór­an þátt í svefn­rútín­unni okk­ar og oft­ar en ekki heyr­um við talað um A og B týp­ur þegar kem­ur að svefni.

Sam­kvæmt rann­sókn­um Arca­dy Pu­ti­lovs, þá er um sex mis­mun­andi svefn­týp­ur að ræða og það er áhuga­vert að finna sig í einni þeirra.

Morg­un­hann­inn
Þú ert mest virk­ur á milli 9-11, og eft­ir það byrj­ar þreyt­an að sækja á þig eft­ir því sem líður á dag­inn. Á kvöld­in ert þú mest þreytta týp­an af öll­um eft­ir­far­andi.

B-týp­an
Þú ert í topp­mál­um á milli 11-17 á dag­inn, en þú get­ur fundið fyr­ir þreytu bæði um morg­un­inn og kvöldið.

Power-napp­ar­inn
Þú vakn­ar við klukk­una snemma um morg­un­inn og ert full­ur af orku til sirka 11. Þú finn­ur fyr­ir þreytu seinnipart­inn og tek­ur þér lít­inn lúr um þrjú eða fjög­ur­leytið. Eft­ir það ertu fersk­ur á ný og í fullu fjöri til miðnætt­is.

Náttuglan
Að vakna snemma á morgn­anna er eins og refs­ing fyr­ir náttugluna sem vakn­ar ekki sam­kvæmt regl­um og varla fyr­ir klukk­an 10 á morgn­anna. En eft­ir því sem líður á dag­inn byrj­ar ork­an að streyma til þín og þú ert í góðum mál­um á kvöld­in og jafn­vel fram á nótt.

Sval­ur­inn
Þú ert 100% al­veg frá því að þú vakn­ar og þar til þú sting­ur þér aft­ur upp í rúm.

Spæt­an
Þú ert stans­laust þreytt­ur – all­an dag­inn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert