Sláandi staðreyndir um avókadó

Avókadó er algjör súperfæða!
Avókadó er algjör súperfæða! mbl.is/Colourbox

Það er auðvelt að elska avóka­dó – ávöxt sem pass­ar inn í ótal rétti, salöt, ídýf­ur eða jafn­vel einn og sér ofan á brauð. Hér eru nokkr­ar skemmti­leg­ar staðreynd­ir um avóka­dó.

  • Avóka­dó inni­held­ur mikið af fólín­sýru sem er t.d. mik­il­væg fyr­ir fóst­urþroska. Því ættu all­ar ófrísk­ar kon­ur að borða avóka­dó reglu­lega. Í raun lít­ur hálf­skorið avóka­dó út, með stein­in­um ennþá föst­um, eins og ófrísk kona.
  • C- og E-víta­mín eru leyni­hrá­efn­in sem fá húðina þína til að glóa. Og það stór­kost­lega er að avóka­dó inni­held­ur bæði þessi víta­mín.
  • Til að fá avóka­dó til að þrosk­ast hraðar skaltu setja það í pappa­poka – eða það sem er enn áhrifa­rík­ara; setja ban­ana við hliðina á avóka­dó­inu, það á að svín­virka.
  • B-víta­mín og magnesí­um eru það besta fyr­ir lík­amann ef þú ert síþreytt/​ur og þarft á hleðslu að halda.
  • Það er fram­leidd­ur ís úr avóka­dó víða um heim­inn en hann leggst mis­vel í fólk. Ísinn er fram­leidd­ur úr avóka­dó, mjólk, rjóma, sykri og límónusafa.
  • Ávöxt­ur­inn inni­held­ur lítið af sykri og hækk­ar þar af leiðandi ekki blóðsyk­ur­inn. Avóka­dó er því sagt gott fyr­ir syk­ur­sjúka.
  • Avóka­dó inni­held­ur mikið magn af trefj­um og get­ur því hjálpað lík­am­an­um með kló­sett­ferðirn­ar – ef þær láta eitt­hvað standa á sér.
  • Gvaka­móle er ein besta ídýfa sem til er! Því er frá­bært að slá tvær flug­ur í einu höggi og borða eitt­hvað hollt sem telst líka vera snakk.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert